Burt með þetta skaðræði

Hingað og ekki lengra, þessum álvera óskapnaði veður að eyða. Það gengur ekki lengur að inn í landið flæði, í ómældu magni, skítugur gjaldeyrir erlends auðvalds í óþökk saklausa íslenska ofurtrúar náttúrusinna, sem eiga sér þann draum helstan að fá að deyja rómantískum hungurdauða við berja- eða fjallagrasatínslu frekar en að þurfa að „engjast“ ævilangt við alsnægtaborð auðvaldsins.

Þá er nú betra að árnar renni ónýttar til sjávar en að þær nýtist erlendu auðvaldi til að murka lífið úr íslendingum með auknum þægindum og betri lífsgæðum.


mbl.is Kaupa verkfræðiþjónustu fyrir 11 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband