Stórundarleg yfirlýsing Áskirkju

Ég dreg ekki í efa orð Áskirkju manna að Karl Vignir hafi ekki komið nálægt börnum í starfi sínu fyrir Áskirkju.

En það sem sker alvarlega í augu í þessari yfirlýsingu Áskirkju er sú dæmalausa fullyrðing að fyrst núna, eftir umfjöllun Kastljóss,  hafi þeim orðið ljóst að Karl Vignir var ekki sérlega vel að þeirri viðurkenningu kominn sem kirkjan veitti honum 2011.

Þetta láta þeir kinnroðalaust frá sér fara þó þeir viðurkenni að Karl Vignir hafi verið rekinn úr sjálfboðastarfi sínu við þessa sömu kirkju 2007, fjórum árum fyrr, í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um refsiverða kynhegðun þessa dæmalausa manns!

Ætli þeir heyri í sjálfum sér, þessir snillingar sem sömdu þessa undarlegu yfirlýsingu f.h. Áskirkju? Það væri fróðlegt að vita hvoru megin við heilbrigða skynsemi, þeir draga línuna milli brottrekstrar og verðlauna.


mbl.is Kom ekki að barnastarfi í Áskirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta sló mig líka. Hvað voru þeir að hugsa 2011?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2013 kl. 13:25

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er sjálfsagt rannsóknaefni fyrir einhverja fræðinga Ásthildur, hvað þeir voru að pæla 2011. En ég veit hvað þeir voru að hugsa þegar þeir sömdu þessa yfirlýsingu. Þeir töldu að best væri að hylja málið sem fyrst og því mokað yfir af meira kappi en forsjá.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.1.2013 kl. 13:34

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já sennilega.  Allt svo hreint og beint hjá kirkjunnar mönnum.... eða þannig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2013 kl. 14:22

4 identicon

Jesú var búinn að fyrirgefa honum. Jesú fyrirgefur öllum sem fíla hann, sama hvað þeir gera

DoctorE (IP-tala skráð) 8.1.2013 kl. 14:24

5 identicon

Það kom fram að presturinn vissi vel hvaða níðingur var þarna á ferðinni og verðlaunaði hann til að sýna kærleika og til að beina honum á betri veg...
Er hægt að vera meir sjúklega geðveikur.. ég bara spyr

DoctorE (IP-tala skráð) 9.1.2013 kl. 09:51

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Segi nú bara það á að dæma slíka "aðstoðarmenn" níðinga fyrir að vera meðsek/ur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.1.2013 kl. 12:17

7 identicon

Það virðast allir sleppa bara ljómandi vel frá þessu samfélagslega stórhneyksli - nema fórnarlömbin.

En hinir skella saman bara yfirlýsingu og segja afsakið. Jú við vissum af þessu en afsakið klaufaganginn. En Þetta gerist ekki aftur...fyrr en í fyrsta lagi næst.

En hugsa: ANDSKOTINN og heitasta helvíti bara. Nú brást þöggunarsamfélagið.

Danni (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband