Þorraþefur kemur til byggða

Það er fyrst núna í aðdraganda Þorra, á loka misseri ríkisstjórnarinnar, sem það rennur upp  fyrir Jóni Bjarnasyni að hann hefur aldrei starfað með þingflokki VG. Þó það hafi farið framhjá Jóni Þorraþefurhefur þverstaða hans við þingflokkinn og ríkisstjórnina verið á allra vitorði frá upphafi kjörtímabilsins.  

Þarna er Jón Bjarnason lifandi kominn, að venju seinastur að fá roða á peruna. Þetta eru því engar fréttir, nema fyrir Jón sjálfan.

Sem betur fer er Jón Bjarnason ekki jólasveinn, þó hann hafi til þess alla burði. Samvinna og samstaða er honum um megn en sundrung, ósætti og önnur óáran hans ær og kýr. Til að þjóna þeirri lund sinni kæmi hann eflaust ekki til byggða, væri hann jólasveinn, fyrr en í upphafi Þorra og kallaðist Þorraþefur.  


mbl.is Jón úr þingflokki VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband