Enn er von til að páfinn ljúki sinni síðustu starfsskyldu

Þær fréttir að Benedikt XVI ætlaði ekki sinna þeirri hefð að andast í embætti veruleikafirrtur og elliær, hefur skekið hinn kaþólska heim. Þeim kaþólikkum sem ætluðu af hjörunum að ganga yfir boðaðri afsögn páfans er það eflaust huggun harmi gegn að páfi hyggst eyða ævikvöldinu innan klausturveggja.

Það hefði auðvitað verið áhangendum páfans mikið áfall hefði hann ætlað að gerast glaumgosi eða taka aftur upp þráðinn, hvar hann varð frá að hverfa úr Hitlersæskunni.

Því miður er umrætt klaustur aðeins hannað fyrir venjulega munka, því þarf að ráðast í verulegar endurbætur á klaustrinu svo það hæfi slíkum eðalmunk, sem ekki hefur þurft neinu meinlæti að venjast.

En áhangendur páfans geta enn beðið og vonað að páfinn sinni þeirri skyldu sinni að andast í embætti, til þess hefur hann 16 daga. Það ætti að vera ríflegur tími jafnvel fyrir menn sem hafa vanist því að gera ekkert hjálparlaust.


mbl.is Páfi verður munkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband