Tveir fyrir einn

Svona í ljósi fáránleikaumræðunnar um færslu Reykjavíkurflugvallar þá hlýtur að vera löngu  tímabært að færa Keflavíkurflugvöll. Það er ómögulegt annað en hann sé fyrir einhverjum. Vantar þeim, sem fengu mannvirkin á vellinum gefins, ekki ódýrar byggingarlóðir? Þarf ekki stjórnviskujöfurinn Árni Sigfúss meira rými fyrir skuldasöfnun?

Af því að við eigum svo mikið af gáfuðu fólki þá er örugglega hægt að fá einhverja verkfræðistofu, með loforði um framtíðarvinnu við verkefnið, til að reikna út gífurlega hagkvæmni þess að færa báða flugvellina í einu, taka tvo fyrir einn.

Vellina mætti færa upp á mitt Reykjanesið, út í miðjan Faxaflóa eða upp á miðjan Grænlandsjökul ef því er að skipta, svo framalega að flugvellirnir  flækist ekki fyrir gáfumannaelítunni við "hagsmunagæslu" heildarinnar.

   


mbl.is Sjötugur flugvöllur slær met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Manni dettur nú bara í hug Landeyjarhöfn þegar maður heyrir um flugvöll á Hólmsheiði! Álíka fáránleg hugmynd!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.3.2013 kl. 13:01

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála því. Það er sorglegt að til sé fólk, sem heita á að sé í þjónustu almennings, sem talar fyrir þessari vitleysu vitandi vits.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.3.2013 kl. 13:15

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góður Axel

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2013 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband