Tökum Vigdísi á Vigdísi

Vigdís Hauksdóttir hefur þann fágæta hæfileika að geta toppað sjálfa sig dag eftir dag í pólitískum apalátum, stærilátum og mikilmennsku töktum og bætir í frekar en hitt.

Ekki má gagnrýna Vigdísi, orð hennar og gjörðir, algóða Framsóknarflokkinn eða vinnufélaga svo hún stökkvi ekki upp á nef sér og taki  Úganda á málið. Það sem virðist heilla Vigdísi við það  „ágæta“ land er að þar er öllum ættboganum refsað, verði einstaklingur uppvís að óæsklilegum hugsunum í garð syndlausra. 

Vigdís hefur gefið tóninn, er þá ekki sjálfgefið að þeim sem mislíkar við hana, fari að hennar ráðum? Þá er bara að kynna sér frændgarð hennar og sniðganga alla sem henni eru tengdir eða mægðir og hætta svo viðskiptum við þau fyrirtæki, hvar ættingjar hennar og vinir vinna.

Það myndi fátt gleðja hana meira en að á hana sé hlustað, en auðvitað gerir það ekki nokkur heilvita maður.


 


mbl.is Hvetur fyrirtæki til að hætta að auglýsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.