Umhverfisvænn flokksleiðtogi.

Þau eru víða augun og eyrun. Og því er eins gott að hugur fylgi máli þegar stjórnmálamenn eru að gera sig græna og væna í augum almennings. Eins og sannast hefur á David Cameron leiðtoga íhaldsflokksins breska.

„Fyrir tveimur árum, skömmu eftir að Cameron var kjörinn flokksleiðtogi, náðist af honum mynd þar sem hann hjólaði á hjóli sínu en í humátt á eftir kom bílstjóri hans í embættisbílnum sem flutti skó, skjalatösku og skjöl Camerons“.

Embættismenn segja ekki hægt að flytja skjalakassana á hjólinu. Væri þá ekki bara heiðarlegra og betra að sitja í bílnum úr því að hann er að fara sömu leið?

Á 30 mín. hjólferð þar sem blaðamaður fylgdi honum eftir nú nýverið virðist hann hafa náð að brjóta flestar umferðarreglur sem hægt var að brjóta.

Þetta kann að hafa áhrif á feril Camerons því Bretar eru mun viðkvæmari fyrir svona, en við Íslendingar, sem erum ónæmir.

  

mbl.is Þverbraut umferðarlög á hjólinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Það þykir nú ekkert tiltökumál þó embættismenn á Íslandi steli og svindli á báðar hendur, þannig að umferðalagabrot nennir enginn að tala um þar. Málið er líka að vera með sverustu gerð af Range Rover og reiðhjól sjást ekki. Hugsa að það myndi hafa neikvæð áhrif á orðspor embættismanns á Fróni ef hann færi að hjóla "eins og fátæklinur"......

Gulli litli, 21.3.2008 kl. 18:50

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sæll Gulli.

Það er nokkuð til í þessu hjá þér. Líkamsrækt Íslendinga fer aðallega fram í líkamsræktarstöðvum þessa dagana. Þar ræður miklu snobb og sýniþörf.

Maður sem ég kannast við býr á 11. hæð í blokk. Hann stundar líkamsrækt og tekur hana alvarlega. Hann fer að heiman, niður með lyftunni, út í jeppann og keyrir yfir götuna að ræktinni. Reynir að leggja eins nálægt innganginum og kostur er. Snarar sér inn og spriklar eitthvað í hálftíma í flotta gallanum sínum. Fer sömu leið  til baka, í bílnum yfir götuna og upp með lyftunni.

Hann hefði náð sama árangri með því að sleppa lyftunni og labba stigann í blokkinni.  En þá hefði enginn vitað af því að hann væri að púla.

Mesta grínið finnst mér samt líkamsræktin á 16. hæð í turninum við Smáralindina. Ef fólk notaði stigann í stað lyftunnar gæti það sparað sér kostnaðinn við ræktina. En svo skynsamir eru Íslendingar víst ekki.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.3.2008 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband