Bjarni axlar sín skinn.

Bjarna Harðarsyni „urðu á mistök“  og hefur axlað ábyrgð á þeim og sagt af sér þingmennsku. Fyrir það er Bjarni maður að meiri. Mættu fleiri taka það sér til fyrirmyndar.

.

  Burt með spillingarlið allra flokka.......enga Breta hingað til landvarna í Desember, aldrei! 


mbl.is Bjarni segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég veit það ekki. Hversu mikill maður er það sem ætlar að stinga samstarfsmann sinn í bakið úr launsátri?? Ekki mikill að mínu mati og flokkast frekar með bleiðum og dusilmennum. Og svo þegar menn eru staðnir að verki við glæpinn verða þeir þá stórmenni við það að taka út sína refsingu? Ég bara spyr.

Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 10:20

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sigurður ég er alls ekki að hæla Bjarna fyrir dyggðir og ráðvendni aðeins að segja að hann hafi axlað ábyrgð af gjörðum sínum, nokkuð sem er ekki lenska hér á Íslandi.

Afbrot koma þá fyrst í ljós er þau verða uppvís og þá kemur krafa um afsögn viðkomandi. Íslenskir stjórnmálamenn hafa látið kröfur um slíkt sem vind um eyru þjóta, hver sem yfirsjónin eða klúður þeirra var. Eina undantekningin á þessu er Guðmundur Árni Stefánsson.

Nú hefur Bjarni brugðist rétt við og sagt af sér í stað þess að þumbast eins og lenskan er. Það ber að virða það þótt menn séu eðlilega ekki sáttir við það sem hann gerði.

Að því leiti mættu aðrir taka hann sér til fyrirmyndar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.11.2008 kl. 11:02

3 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Já það mættu sko fl,taka hann til fyrirmyndar

Guðný Einarsdóttir, 11.11.2008 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband