Ég biðst afsökunar.

Ég hef í huganum beðið Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur afsökunar á að halda að hún myndi ekki valdaragnheidur-asta embætti forseta Alþingis.

Hún sýndi í dag, þegar hún vísaði ruddalegum formanni Framsóknarflokksins, úr ræðustól að hún hefur bein í nefinu og hefur fulla burði til embættisins. 

sigmundur-david-gunnlaugsson-frett

Stjörnuhrap Sigmundar Davíðs hefur á stuttum tíma verið þvílíkt að fá dæmi eru um hliðstæðu þess.

Sigmundur hefur með undraverðum hraða breyst úr ungum glæsilegum, nýjum formanni Framsóknarflokksins, sem giska margir leyfðu sér að binda nokkrar vonir við, í agalausan og  leiðinlegan lýðsskrumara, sem ekki þekkir sín takmörk. Halldór

Sigmundur glotti þegar hann hrökklaðist úr ræðustól, glotti fíflsins.

Framsóknarmenn margir hverjir eru örugglega farnir að sakna gáska og galsa Halldórs Ásgrímssonar.

.

 
 
mbl.is Óásættanleg framkoma forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég spyr?

Hvað er í gangi hjá ykkur samfylk, mönnum.?  Af hverju má ekki spyrja hvað heilög Jóhanna sé að sísla, sérstaklega þar sem hún virðist vera að missa móðinn og veit ekki í hvern fótin hún á að stíga? 

Guðrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 02:52

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Guðrún, þetta snérist ekki um að Sigmundur ekki mætti segja álit sitt á Jóhönnu eða öðru sem angrar hann, þetta snérist um að hann kvaddi sér hljóðs undir fölsku yfirskini. Hann kom upp í ræðustól undir liðnum"fundarstjórn forseta" en talaði um allt annað og byrjaði að lesa upp úr dagblaði.

Þetta er álíka og hann hefði í umræðu um fjárlög ætlað að tala um friðun fugla. Það hefði líka verið stoppað.

Guðrún, þó ég sé krati þá er ég ekki endilega sannfærður Samfylkingarmaður, böndin trosnuðu verulega þegar Ingibjörg skreið upp í bólið til Geirs.

En eitt er þó á hreinu, ég er giska kátur með að bera ekki ábyrgð á veru Sigmundar Davíðs á Alþingi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.6.2009 kl. 03:15

3 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Ekki má skyggja á snilld og fauskshátt Sigmundar Davíðs hins genetíska Framsóknarmanns. En Ásta Ragnheiður er nú gömul Framsóknarfrekja. Nú uppfull af ofstæki forsjárhyggjunnar. Hún á eftir að afhjúpa vanhæfni sína enn frekar í því nýja grínhlutverki sem hún veldur ekki.

Þorri Almennings Forni Loftski, 17.6.2009 kl. 04:26

4 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Sem talað úr mínu hjarta.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 17.6.2009 kl. 13:58

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég batt vonir við hann í byrjun. Talaði hægt og yfirvegað, en nú getur hann ekki lengur hamið sinn innri mann.

Finnur Bárðarson, 18.6.2009 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband