Þegar möppudýrin komast á flug þá er þetta útkoman.

Þetta minnir mig á þegar Helga Björg HU 7 frá Skagaströnd, sem var í eigu föður míns og tveggja félaga hans, fékk úthlutað kvóta eitt árið. Þá hljóðaði karfakvóti þess árs upp á 180 grömm!

 

Gert var grín að þessu og gárungarnir sögðu að það gæti tekið þá félaga allt árið að ná karfakvótanum, að finna titt sem væri slétt 180 grömm.

 
mbl.is Mega veiða sjö fiska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Góður...þetta verða einstaklega skemmtileg lesefni þessar reglugerðir frá  Jóni Bjarna..í fiskiveiðidæminu ef það heldur svona áfram...JB er kanski að reyna að létta manni lund á þessum erfiðum tímum sem framundan eru..Kv

Halldór Jóhannsson, 27.6.2009 kl. 11:04

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hvað er þessi maður að gera í ríkisstjórn? Maður sem aldrei hefur hoppað yfir bæjarlækinn og hefur asklok fyrir himinn.

Finnur Bárðarson, 27.6.2009 kl. 17:38

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég varð undrandi þegar Jón B. varð sjávarútvegsráðherra, hann hefur ekki þá festu og áræði sem sjávarútvegsráðherra þarf hafa, sér í lagi nú um stundir þegar til stendur að rífa kerfið upp með rótum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.6.2009 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband