Er Sænska leiðin, ....

Hooker-018....sem var sögð lausn lausnanna, ekki að virka?

Skrítið.

Gaman verður að heyra skýringu talsmanna sænsku-dásemdarinnar á þessu.


mbl.is Götuvændi eykst á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Auðvitað virkar sænska leiðin, það sjá það allir ... eða þannig

Sævar Einarsson, 28.7.2009 kl. 12:19

2 Smámynd: Karl Ólafsson

Axel, ég reyndi að svara athugasemd þinni á síðu Kjartans Jónssonar þar sem þú minntist á ritskoðun tiltekins bloggara (JVJ).

Athugasemd mín var í þá veru að víst væri ristskoðun eins og sú sem JVJ ástundar hvimleið, en hann má þó eiga það að hann tiltekur í haus bloggsins nákvæmlega í hvaða tilfellum hann eyðir út athugasemdum (og beitir síðan sinni dómgreind til að skera úr um hvort þau skilyrði séu uppfyllt) og hann lætur síðan vita af því þegar hann eyðir út færslum.
Kjartan Jónsson þessi hins vegar eyðir út og blokkar á athugasemdir frá mönnum af minnsta tilefni án þess að það sé tiltekið og án þess að geta þess að það hafi hann gert. Þannig gat ég ekki sett inn mína athugasemd áðan þar sem ég er blokkaður eftir að hafa orðið á að spyrja Kjartan út í ritstjórnarstefnu síðu hans á eins kurteislegan máta og ég hefði talið unnt að gera. Þá var ég ekki einu sinni búinn að andmæla málflutningi hans eða gefa í skyn skoðun mína á honum.
Ef þú vilt sannreyna þetta getur þú prófað að spyrja hann í athugasemd hvort þetta sé satt og rétt.

Karl Ólafsson, 28.7.2009 kl. 12:42

3 Smámynd: Karl Ólafsson

Fyrirgefðu, ég ætlaði að setja inn hlekk á greinina með athugasemd þinni sem ég vísaði til:
http://kjarri.blog.is/blog/kjarri/entry/921312/#comments

Karl Ólafsson, 28.7.2009 kl. 12:43

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Karl, ég get ekki svarað fyrir Kjartan. Ég þekki ekki málið sem þú vísar til og get því ekki tjáð mig um það.

Hvað Jón Val varðar þá getur hann þess vissulega á haus bloggsins hvað sé bannað. Og honum er frjálst að ritstýra sínu bloggi eins og honum sýnist.

En Jón getur þess ekki að það sé bannað að vera ósammála honum eða leiðrétta hann og benda honum á rangfærslur. Það virðist duga til að lenda undir hnífnum hjá Jóni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.7.2009 kl. 13:21

5 Smámynd: Karl Ólafsson

Axel, ekki ætlast ég til að þú svarir fyrir Kartan. Vildi bara vekja athygli á þessum vinkli vegna þess að þess sjást engin merki á síðu hans að hún sé rekin með þessum hætti.

Karl Ólafsson, 28.7.2009 kl. 13:29

6 Smámynd: Karl Ólafsson

"Kjartan", ekki "Kartan". Afsakið.

Karl Ólafsson, 28.7.2009 kl. 13:29

7 Smámynd: Karl Ólafsson

Hvað varðar JVJ, þá var það einmitt þetta sem ég átti við þegar ég sagði að hann beiti síðan dómgreind sinni. Utanaðkomandi gæti virst að dómgreindin bregðist honum stundum :-)

Karl Ólafsson, 28.7.2009 kl. 13:31

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Karl, það má eflaust deila um það hvort ritstjórnarstefna JVJ falli undir góða dómgreind eða pólitíska og trúarlega forsjáráráttu.

En hitt er deginum ljósara, þegar maður sem lokar á aðra aðila en fer svo  sjálfur inn á þeirra síður og deilir þar áliti sínu og skoðunum hægri, vinstri á viðkomandi og skrifum hans, þá falli það ekki undir góða dómgreind heldur miklu frekar undir verulegan skort á henni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.7.2009 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband