Úlfar er flottur

úlfarÞað er hægt að geyma kjöt ansi lengi í frysti sé rétt frá því gengið, það „glasserað“ og umbúðir lofttæmdar.  Kjötið hlýtur að hafa verið í lagi því enginn kvartaði yfir gæðum kjötsins, þótt Úlfar sé snillingur þá verður geymslubragð ekki falið með kúnstum, sé það komið á annað borð.

En það sem vekur mesta athygli er að á þessum sautján árum hafi aðeins sjö af 530 þúsund gestum Úlfars gengið út vegna hvalkjötsins á matseðlinum!!   

0,00132% gesta Úlfars gátu ekki sætt sig við hvalkjöt á matseðli hússins.Það er nú allurhvalkjöt árangurinn af  áróðrinum, hamaganginum, veiðibannsbullinu og brjálæðinu því tengdu.

Var það ekki líka í fréttum um daginn að ásókn í hvalaskoðun fyrir norðan hefði náð áður óþekktum hæðum, nú mitt í nýhöfnum hvalaveiðum?

Þetta er þveröfugt við hrakspár og úrtölur veiðiandstæðinga. Þetta sýnir að áróður þeirra nær ekki eyrum hugsandi fólks.

Það má færa að því rök að hvalveiðarnar sjálfar séu aðalástæða aukinnar aðsóknar í hvalaskoðun.

 
mbl.is Hvalkjötið dugði Úlfari í sautján ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já ég er sammála thér....thessi kokkur..Úlfar..hann er snillingur í matargerd og mjög gódur í samskiptum. 

Thad er sama hvad madur bordar á thessum veitingastad hans..allt bragdast mjög vel.  Jafnvel thad ad borda plokkfisk thar er nautn.

Hann er snillingur og ég hef sagt thad vid hann.  Hann á skilid ad fá ad vita ad fólk kann ad meta hans snilld.

Grádugur madur (IP-tala skráð) 9.8.2009 kl. 13:58

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þar erum við sammála Gráðugi maður. Í sjáfarafurðum er Úlfar ekki bara fremstur, heldur lang fremstur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.8.2009 kl. 17:50

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Allt sem Kristján (eigandi bátanna "Hvalur 1+2+3+4+5+6+7+8") segir um hinn gífurlega "markað" fyrir hvalakjöti ætti að skýra sig sjálft með 17 ár djúpfrystingu?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 10.8.2009 kl. 00:47

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Anna, þetta var kjöt sem komst ekki til Japans vegna aðgerða Grænfriðunga.

Úlfar keypti kjötið þegar veiðibann hafði verið sett og hann geymdi það í 17 ár.

Það segir minna en ekkert um það að Kristján hafi ekki getað selt öðrum  kjötið.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.8.2009 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband