Auðvitað eiga menn að fá...

... „annað tækifæri“ þegar þeir hafa setið af sér dóma.  En það „tækifæri“ getur aldrei verið galopið í báða enda og án takmarkana.

En enginn er svo vitlaus, nema þá kirkjan bersýnilega,  að gefa dæmdum barnaníðingi annað tækifæri með því að láta hann fara aftur  að vinna með börnum, jafnvel þó níðingurinn hafi gengið í gegnum einhver „afníðingaprógrömm“. 

Það er nóg að öðrum störfum sem hefðu hentað Guðsmanninum betur, sem annað tækifæri.

Það virðist gersamlega vonlaust að Kirkjan, þetta sendiráð fáránleikans hér á Jörðu, læri af reynslunni.

 
mbl.is Barnaníðingur skipaður prestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir sem trúa á galdra og galdrabækur, þeir geta ekki lært af reynslunni.
Tala nú ekki um fólk sem enn trúir eftir að hafa lesið þessa og aðrar galdrabækur.

Það er púra ábyrgðarleysi hjá foreldrum að láta börn sín í hendur manna sem dýrka geimgaldrakarla.. segja þá vera rosalega góða þó svo að meint bók þeirra boði þjóðarmorð og ógnir í hverri setningu.

Ég myndi skjóta á að kannski ~3% íslendinga myndu vera í kristni ef þeir væru búnir að lesa og kynna sér það sem þeir segjast trúa á.

DoctorE (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 20:17

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Hvern andsk á maður að trúa á nú til dags ?

hilmar jónsson, 15.9.2009 kl. 20:41

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

DoktorE; ég get ekki ímyndað mér að fólk sem ber einhvern snefil af tilfinningum til barnanna sinna láti þau koma nálægt þessum manni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2009 kl. 20:50

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hilmar; óróinn í Selfosssöfnuði er eins og fagnaðarerindið sjálft miðað við þessi ósköp.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.9.2009 kl. 20:52

5 identicon

Þetta er eins og alkahólisti sem fer eftir meðferð að vinna á bar. Það er ekki hægt að lækna kynferðislegar kenndir. Það er eins og að reyna að lækna undrun, " ég lofa því að ég er búinn að læknast af því að undrast, "

Karl (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 23:08

6 identicon

Refur óskast til að gæta hænsnakofa.

Sveinn (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 09:01

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Alveg ótrúlegt! Tek undir með Sveini..

Óskar Arnórsson, 16.9.2009 kl. 09:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband