Froða metin til fjár.

Ríkidæmi þessara manna er byggt á froðu. Minnst af þessu meinta ríkidæmi er í hendi. Megnið er byggt á ímynduðu markaðsgengi  pappírs, sem ekkert kann að vera á bak við þegar á reynir.

Rétt eins og froðan sem kölluð var Íslenska efnahagsundrið, öll eignamyndunin sem blásin var upp í fjölmiðlum reyndust skuldir einar þegar upp var staðið.

Undradrengirnir lifðu hátt, glamur og glys varð aðalsmerki hinna nýríku Nonna.

Þegar spilaborgin féll sögðu þeir brosandi að það væri óábyrgt af þeim að borga skuldir sínar. Þjóðin fékk reikninginn.

  
mbl.is Þeir ríku ekki eins ríkir og áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

og nú eru þeir komnir aftur að sækja meira, t.d. Björgólfur Thor sem á megnið af gagnaverinu sem á að byggja í Keflavík. Síðan keyrir hann það í þrot að sjálfsögðu.

Finnur Bárðarson, 1.10.2009 kl. 15:32

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Margur verður af aurum api, og við búum í dýragarði=apadeildinni.

hilmar jónsson, 1.10.2009 kl. 16:17

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já Björgdólgur For mun skuldsetja draslið í topp og svo.....

...og aparnir sem ættu að vera í búrum, ganga enn frjálsir, en þjóðin hefur verið hneppt í fjötra.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.10.2009 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband