Jóhanna brilleraði

Þrátt fyrir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi verið uppáhaldsstjórnmálamaðurinn minn í langan tíma og raunar sá eini sem ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir þá kveið mig nokkuð fyrir ávarpi hennar í kvöld.

Ástæðan er einföld, fólki gengur misjafnlega að vingast við myndavélina sem flytur það inn í stofu til okkar. Myndavélarnar hafa sannast sagna verið litlar vinkonur Jóhönnu, án þess að hún hafi til þess  unnið.

En þessi kvíði minn var algerlega ástæðulaus,  Jóhanna brilleraði, kom vel fyrir og flutti feiknagott ávarp, þótt ekki væri það eðli máls samkvæmt í einhverjum  í ævintýra- og rjómatertustíl.


mbl.is Krefjumst ábyrgra fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já gott að heyra. Var með gesti og horfði ekki á Jóhönnu. En gleðilegt ár vinur. Takk fyrir bloggvináttu á liðnu ári.

Kveðja Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 1.1.2010 kl. 01:06

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Gleðilegt ár Axel.

Já hún stóð sig hreint ekki illa.

hilmar jónsson, 1.1.2010 kl. 02:15

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

nennti ekki að horfa - en gott að þú varst ánægður með "kellu" - Gleðilegt ár kall

Jón Snæbjörnsson, 1.1.2010 kl. 03:07

4 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Hm. Hreint ekki illa segir Hilmar. Maður fer nú að verða forvitinn. Átti hún ekki að vera súper-góð strákar?

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 1.1.2010 kl. 11:37

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir innlitið kæru vinir, mínar bestu kveðjur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.1.2010 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband