Bloggfærslur mánaðarins, september 2011

Bandarísku stjórnarskránni er ætlað að vernda hryðjuverkamenn en ekki saklausa blökkumenn

Gary Johnson, fyrrum fylkisstjóri Nýju Mexíkó, sem sækist eftir útnefningu sem forsetaframbjóðandi Fasistablikana flokksins, sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann gagnrýnir harðlega drápið á hryðjuverkahundingjanum Anwar al-Awlaki.

Hundinginn átti, að mati frambjóðandans, sem bandarískur ríkisborgari, að njóta verndar Bandarísku stjórnarskrárinnar!

Illa fer hún þá í manngreinaálit þessi hundgamla stjórnarskrá, hún kom ekki að gagni til að bjarga lífi  bandaríska ríkisborgarans Troy Davis, sem tekin var af lífi í Georgíu á dögunum þrátt fyrir æpandi vafa um sekt hans. En hún þykir vel brúkhæf sem vernd fyrir morðóðan hund í Jemen, sem boðar dauða og tortímingu á bæði borð.

Það virðist sitthvað í augum bandarísku Fasistablikanna dæmdur svertingi eða óður hryðjuverkahundingi.

Ég verð að játa að ég skil þennan hugsunarhátt ekki fullkomlega.


mbl.is Gagnrýnir aftöku al-Awlaki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jónas er og verður flottur...

Jónas Jónasson...allt til enda og löngu eftir það.

Mikið var viðtalið í Kastljósi kvöldsins við Jónas Jónasson indælt og gleðiríkt, þrátt fyrir þann skugga sem að baki býr.

Þetta er eitthvert jákvæðasta og besta sjónvarpsefni sem sést hefur í háa herrans tíð.


mbl.is Vill fá að sjá líkræðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa Íslenskir síonistar ekkert um þetta að segja?


Eitthvað virðist skorta á þá órofa samstöðu, sem Íslenskir síonistar hafa haldið fram að væri í Ísrael,  um stefnu Ísraelstjórnar  gagnvart Palestínsku þjóðinni og stöðugu landráni þeirra á hernumdu svæðunum Palestínu.


mbl.is Landtökumenn og aðgerðasinnar slást
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpnum stolið

Trúlega er Páll Magnússon  hæfastur umsækjenda um starfið og ráðning hans því fullkomlega eðlileg.  

En ég sé fyrir mér öll spillingar- og vandlætingarbloggin sem hefðu haugast upp undir þessari frétt ef hæfasti umsækjandinn hefði slysast til að vera Samfylkingarmaður eða Vinstri grænn en ekki Framsóknarmaður að langfeðratali.

   


mbl.is Páll ráðinn forstjóri Bankasýslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkvæmt öruggum heimildum

Hádegismóri hefur ekki legið á liði sínu að tortryggja öll verk og gjörðir ríkisstjórnainntar með linnulausum flutningi á heimasmíðuðum fréttum sem eru í besta falli hálfsannleikur og útúrsnúningar.  

Nú er seilst enn dýpra í skítabrunna blaðsins og aðför gerð að Sérstökum saksóknara og störf hans gerð tortryggileg. Morgunblaðið unir því eðlilega ekki að meintir glæpamenn, skjólstæðingar blaðsins og dyggir flokksdindlar, sæti rannsóknum og símahlerunum.  

Lágmark er að mati blaðsins að allir heiðarlegir glæpamenn séu látnir vita af því að símar þeirra séu  hleraðir svo þeir geti gætt orða sinna. Sérstaklega finnst Hádegismóra ámælisvert að Sérstakur nýti sér hleraðar upplýsingar við rannsókn málsins og yfirheyrslur.

Þeir voru ekki svona upplýsingaglaðir og viðkvæmir á Mogganum hér á árum áður þegar Sjálfstæðisflokkurinn, í krafti stjórnarsetu, lét hlera síma pólitískra andstæðinga sinna.

Af einhverjum ástæðum rataði það ekki inn á síður Moggans.


mbl.is Heyra utan að sér um símhleranir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk eða verðlaus skítur?

Nýjum valdhöfum Líbýu, sem komust til valda með ofbeldi, er hleypt inn í samkuntu vestrænna þjóða og engra spurninga spurt. Ekki þurfa nýju valdhafarnir að sýna eða sanna að rassgatið á þeim sé skömminni skárra eða frábrugðið Gaddafi og hans slekti öllu.

Á sama tíma er annarri þjóð, sem þurft hefur að berjast fyrir tilverurétti sínum, við ofurefli og verjast ágangi og landráni áratugum saman, haldið frá samfélagi þjóðanna. Neitunarvaldi hjá Sþ. og öðrum aðgerðum er hótað til að þeirri kúgun og smán megi viðhalda.

Það virðist alfarið fara eftir því hvort undir yfirborðinu leynist olía eða ekki, hvort fólkið sem á landinu býr sé, af samfélagi þjóðanna, metið sem mannlegar verur eða verðlaus skítur.

  


mbl.is Líbíu hleypt inn úr kuldanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki fyndið, en...

Það er ekki fyndið að flugmaður sé fullur í vinnunni, en bíómyndirnar Airplane eru óborganlega fyndnar, þær hafa þetta allt.

 
mbl.is Flugmaðurinn var fullur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju reiddust goðin?

14337Lögreglan hefur gefið það út að hún muni ekki standa heiðursvörð við setningu Alþingis. Það er  staðreynd.

Lögreglustjórinn  ber fyrir sig sparnaði, en það gildir einu hver ástæðan er, heiðursvörður lög- reglunnar verður ekki við þing- setninguna, það er útgangspunkturinn.

Ég fæ því ekki séð af hverju Ólína ætti að biðja lögregluna afsökunar á þeirri hugmynd sinni að björgunarsveitarmenn standi heiðursvörðinn í þeirra stað, þó mér finnist þessi hugmynd Ólínu afleit, sem slík. 

  


mbl.is Undrandi á ályktun lögreglumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinir litla mannsins

Það er aðdáunarvert hvað Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkurinn láta kjarabaráttu, réttindi og velferð almennra launþega sig miklu varða þessar vikurnar. 

Það verður ekki amalegt að lifa komist þeir til valda, ef ekki verður þá snögglega áberandi  dýpra á allri ástúðinni og umhyggjunni.


mbl.is Lögreglumenn á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáum þetta á hreint

Fyrirsögnin á þessari turtildúfu frétt Smartlandsins væri kjörin sem spurning dagsins á útvarpi Sögu, til að kalla fram „sannleikann“ í þessu mikilvæga og brennandi máli.

Væri ekki kjörið að Smartland Mörtu Maríu og útvarp Saga snúi kviðum saman til að kryfja til mergjar mest brennandi mál samtímans, framhjáhöld og annað hámenningarlegt slúður og bull? 


mbl.is Hélt hann framhjá Demi Moore?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband