Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2012

Hvar eru landvættir moggabloggsins?

Þegar þetta er skrifað er þessi frétt um Sædrekann orðin tveggja og hálfs tíma gömul og enn hafa engin samsæriskenningablogg komið um „augljós“ tengsl heimsóknar Sædrekans og hugsanlegrar leigu á smá spildu úr landi Grímstaða. Svo ekki sé talað um veru tveggja fulltrúa „landráðastjórnarinnar“ um borð í skipinu, hvar þeir sitja að boði ríkisstjórnarinnar að augljósum svikráðum við eigin þjóð.

Er landvætunum Moggabloggsins farið að förlast?

Í eldri frétt um ferð skipsins  hafði Páll Vilhjálmsson leigupenni og haugsmiðill, ekki Baugsmiðill, áttað sig á beinum tengslum ferðar skipsins við Samfylkinguna, eins og glöggt má sjá af siglingaleiðinni.

Hann getur verið tilfallandi glöggur hann Páll, sérílagi þegar honum er greitt fyrir það.

  

mbl.is Snædrekinn við Íslandsstrendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slappt viðskiptavit

2012-07-02-GayPride2012Þjófnaður á miklu magni af málningu að nýafstaðinni gleðigöngu er undarlegur.

Ef þjófarnir væru sannir  bissnismenn hefðu þeir hnupplað málningunni fyrir gleðigönguna þegar eftirspurn eftir málningu er í sögulegu hámarki á Íslandi, þegar hálf þjóðin, streymir spriklandi og strípuð út á stræti og torg, máluð eins villimenn.

gay


mbl.is Málningu stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpur í matinn

Það er afskaplega skynsamlegt að haga veiðum á hrefnu eftir eftirspurn og raunar ekki forsenda fyrir öðru.

Þeir sem ekki geta unnt öðrum að neyta hrefnukjöts og kalla það jafnvel glæpsamlegt, virða ekki nein rök og una sér ekki hvíldar í áróðri sínum gegn skynsamlegri nýtingu á auðlindum sjávar. M.a. er „lítil“ neysla á hrefnukjöti notuð sem rök gegn þó afar takmörkuðum veiðum á henni, þó það sé beinlínis í hrópandi mótsögn við meintar ofveiðifullyrðingar sömu manna.

Líkur má að því leiða að eftirspurn á lambakjöti væri ekki með hressasta móti, hefði neysla á því verið stöðvuð í tuttugu ár vegna misskyldra „verndunarsjónamiða“ og heil kynslóð þannig látin fara þess á mis að alast upp við kosti þess og gæði. Þegar það kæmi á markaðinn aftur væri slök eftirspurn í upphafi að sjálfsögðu notuð sem rök gegn þeim glæp, sem neysla á kindakjöti væri sögð.

Með tíð og tíma mun neysla á hvalkjöti aukast, eftir því sem fleiri og fleiri kynnast og reyna hvaða gæða góðgæti hvalkjötið er,  hreinleika þess og hollustu. Það er nánast glæpur að vilja meina mönnum þess.


mbl.is 29 hrefnur eru komnar á land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hengja bakara fyrir bankamann

David Walker, nýr stjórnarformaður Barclays bankans breska, telur að upptaka þjónustugjalda og  gjaldtöku allskonar í bankakerfinu þarlendis muni leiða til heilbrigðari viðskiptahátta bankanna.

Það mætti benda þessum Walker á, að þjónustugjöld og önnur gjaldtaka Íslensku bankanna af viðskiptavinum sínum hafi hreint ekki, nema síður væri, hindrað græðgisvæðingu bankanna sem varð þeim að lokum að falli.


mbl.is Leggur til gjald á bankareikninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar í þjóðfélagsstiganum hætta skattsvik að vera afbrot?

Skattgreiðslur forsetafrúarinnar hafa verið í umræðunni í sumum fjölmiðlum undanfarið, þó aðrir reyni hvað þeir geta að þegja það hneyksli í hel.

Fremstir í þeirri þöggun fara pólitískir andstæðingar forsetans, sem þó létu sig hafa það að kjósa hann í nýafstöðnum forsetakosningum, því þeir töldu það fullnægja stjórnarandstöðu ákefð sinni og krónískum ótta við Evrópusambandið.

Ljóst er að skattauppgjör  húsmóðurinnar á Bessastöðum er ekki í samræmi við Íslensk skattalög, hvað sem skýringum forsetaembættisins líður.

Mogginn þegir þunnu hljóði  um þessi meintu skattsvik forsetafrúarinnar, sem hann best getur, en ég sé fyrir mér fyrirsagnirnar í Mogganum, greiddi einhver núverandi ráðherra eða flokksfélagi ríkisstjórnarflokkana skattana sína erlendis!

Þá yrði nú ólmast maður og afsagna krafist!

  


Faðernið sannað

Þá er það loks á hreinu að AMX.is, saurugasti vefmiðill landsins, er, sem margan hefur grunað, skilgetið afkvæmi Morgunblaðsins!  

 

Samkvæmt frétt á Vísir.is, en eðlilega ekki á mbl.is.  


Einstakt afrek

Þessi auglýsing er tær snilld. Það þarf snillinga og kraftaverkamenn til að gera efni, með þátttöku Árna Johnsen, skemmtilegt. Það hefur aldrei tekist áður og næsta vonlítið að muni gerast aftur.


mbl.is „Þjóðhátíð blásin af?“ slær í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.