Verði ykkur að góðu

Góðir matreiðsluþættir og blátt áfram hjá Yesmine Olsson á ríkiskassanum, eitthvað annað en margir aðrir slíkir, sem eru ekkert nema tilgerðin og snobbið, eins og t.d. þættir Jóa Fel.


Nauðgarar - sendimenn Guðs!

Ef marka má ummæli Rick  Santorum, fyrrum ríkisstjóra Pennsylvaníu, sem sækist eftir útnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, þá liggur beinast við að umbuna nauðgurum fyrir að færa konum Guðsgjöfina, eitt stykki nauðgun. Það er auðvitað galið að refsa þessum sendiherrum Himnaríkis, takist þeim að gera "njótendum náðar Drottins" barn í belg.

Svona öfgasinnaðir trúarrugludallar eins og þessi Santorum eru giska hátt skrifaðir þar vestra og sýnir það glöggt þroskastig almennings.  

En undarlegast er þó að svona raddir heyrast líka hér á landi, þekktur Moggabloggari fer m.a., mikinn í svipuðum boðskap,  á hinum ýmsu bloggum og bloggsvæðum.

  


mbl.is Þungun vegna nauðgunar er guðsgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískir „kynvillingar“

Upp er að runnið síðasta tækifæri óánægðra stjórnarþingmanna,  bæði í Samfylkingunni og VG, að ákveða í hvoru liðinu þeir ætla spila, stjórn eða stjórnarandstöðu. Það er ótækt að einstaka leikmenn í stjórnarliðinu leiki einungis á eigið mark og skori hvert sjálfsmarkið á fætur öðru til þess eins að fita púka stjórnarandstöðunnar á fjósbitanum.

Sjái þessi pólitísku „kynvillingar“ ekki að sér strax eiga þeir hreinlega að koma formlega út úr skápnum,  yfirgefa stjórnarliðið, og ganga til liðs við stjórnarandstöðuna og koma henni til valda. Það liggur beinast við og væri ærlegast.

Þessi fífl halda að þau afli sér vinsælda hjá almenningi með því einu að bruna, í einhverju óvinsældarmálinu,  upp eigin vallarhelming og skora í eigið mark. Stjórnarandstaðan fagnar að vísu hverri  slíkri uppákomu og klappar allt hvað af tekur, en almenningi er ekki skemmt.

Það er klárt að til stjórnarandstöðunnar munu þetta óánægjupakk ekki sækja sér fylgi þegar það hyggst endurnýja  umboð sitt í næstu kosningum. Hætt er við að þá verði þeir fáir, fyrrum fylgismenn þessa liðs, sem ekki hafa fengið fullkomlega upp í kok af þessu liði, og muni þá ljá öðrum atkvæði sitt til að framlengja ekki vitleysuna eða endurtaka sín fyrri kjörklefamistök.  

Kjósendur eru nefnilega ekki fífl eins og þessir pólitísku „kynvillingar“ virðist halda.

   


mbl.is Stjórnarkreppa í augsýn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Ragnar er mun vinsælli meðal sjalla en Geir Haarde

Morgunblaðið fylgist vel með undirskriftasöfnuninni til áskorunar á Ólaf Ragnar að bjóða sig fram. Birtir mbl.is reglulega nýjustu tölur og hvetur menn til þátttöku og hafa um 13000 manns orðið við kallinu á þeim rúma sólarhring sem söfnunin hefur staðið.

Önnur undirskriftasöfnun er í gangi á netinu, sem er á vegum samtakanna Málsvörn, til stuðnings Geir  H. Haarde í Landsdómsmálinu. Söfnunin hefur staðið yfir í nokkra mánuði og hafa aðeins 4661 skrifað undir og  ekki hefur orðið breyting á fjöldanum í nokkrar vikur, stuðningsmannalistinn er sennilega að fullu tæmdur. Ekki er stafkrókur í Mogganum um söfnun Geirs.

Það er áhugavert að Mogginn og sjálfstæðismenn hafi til muna meiri áhuga á  framgangi „kommans frá Ísafirði“ en fyrrverandi forsætisráðherra óskeikula flokksins og hreinræktuðum eðalsjalla.

Vart er við öðru að búast, vegna þessarar uppákomu, en viðvarandi snúningur hljóti að vera á gengnum foringjum sóðaflokksins, hvar þeir „hvíla“ í gröfum sínum.

  


mbl.is Undirskriftum fjölgar ört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þú Ásmundur Einar...

...og skoðanabræður þínir, viðhafið auðvitað ekki áróður, ....eða eruð þið vitringarnir handhafar einkaréttar á áróðri varðandi ESB?

 
mbl.is „Gegndarlaus áróður ESB"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú....

....tek ég undir með Þór Saari, annað er ekki hægt.

 


mbl.is „Hafi þau skömm fyrir um aldur og ævi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákalli forsetans svarað

Þá hefur Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fengið það fram sem hann kallaði eftir í nýársársávarpi sínu. „Skorið á mig og ég fer hvergi“. Ólafur verður í kjöri í sumar, ætlaði sér sennilega aldrei annað. En ásskorunina vildi hann...

Uppskrift að bananalýðveldi

Hafi Alþingi afskipti af Landsdómsmálinu gegn Geir H. Haarde og felli það niður eru það skýr skilaboð til þjóðarinnar að þingið ætli að gefa skít í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Það verður jafnframt innrömmuð yfirlýsing að ekki standi til að draga...

Allt er breytingum háð

Ef marka má þessa frétt mbl.is, hefur frystitogarinn Sigurbjörg ÓF-1 lagt togveiðar á hilluna og er farin á net.

Auma hirðfíflið

Hljómaði borgarstjóri Reykjavíkur aðeins eins og hreinræktað fífl í Kastljósinu áðan eða er hann það í raun og veru? Þegar Sigmari varð ljós kjána- og vandræðagangur borgarstjórans að svara einföldustu spurningum um starfssvið sitt, sló Sigmar greinilega...

Hvað varð um miskunnsama samverjann?

Frekar er það klént og þeim til lítils álitsauka sem virðir fyrir sér hreyfingarlausa mannveru á bekk í kalsa tíð og heldur að eitthvað kunni að vera að viðkomandi en hringir á lögregluna, í stað þess að kanna sjálfur ástand þess hreyfingarlausa. Sá tími...

Er Jón Valur tækur í Spaugstofuna?

Undarlegt er að enn hafa engin viðbrögð orðið við ákalli forsetans í nýársávarpi hans, hvar hann lýsti því yfir að hann „vildi“ hætta, en færði auðvitað þá fórn fyrir þjóðina að sitja sem fastast, yrði nægjanlega hart eftir því gengið. Hvar...

Skandall

Skandall, sögðu margir í fyrra þegar Björn Lúkas Haraldsson Íslands og Norðurlandameistari í Júdó var ekki kjörinn Íþróttamaður Grindavíkur. Nú í ár, þegar hann hefur varið sinn titil auk annarra glæsilegra titla í öðrum íþróttagreinum, sögðu allir að nú...

Gleðileg jól kæru vinir!

Ég óska bloggvinum mínum, sem og öðrum lesendum bloggsins, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég þakka allar heimsóknir, jafnt sem athugasemdir á blogginu á árinu sem er að líða. Kær kveðja, Axel Jóhann

Kertafleyting í minningu Kim Jong Il

Í kvöld fór fram, í algjöru einmenni, kertafleyting í minningu hins mikla, stórkostlega, óskeikula og himneska leiðtoga N-Kóreu. Svo er bara að sturta, og skíturinn farinn!¨

Þó fyrr hefði verið

Það er fullkomlega eðlilegt að íbúar Norður Kóreu séu harmi slegnir yfir löngu tímabærri ferð Kim Jong Il til helvítis. Alþýða N- Kóreu hlýtur, þrátt fyrir gleðina yfir fráfalli „ástsæls“ skíthælsins, að vera full angistar yfir þeirri hugsun...

Dæmigerður hægri bjáni

Þvílíkur andskotans bjáni! Hvernig yrði saga Ameríku, ef þessi staðbundna „söguskýring“ þessa Gingrich bjána um Palestínu, væri tekin á línuna? Hverjir byggðu Ameríku þegar hvíti maðurinn „flutti inn“ ruddi þeim úr vegi og stálu...

Öfug kynferðismisnotkun

Er þetta ekki málið? Að konur, (sumar N.B.) noti klofið á sér, til að koma sér á framfæri hvar sem því verður viðkomið, eins og þessi kona viðurkennir hispurslaust, og mun eins og sögur herma, vera giska algengt í hennar bransa? Svo er æpt, gangi...

Skrökusaga

Þó komið hafi meiri snjór í Grindavík síðustu tvo daga en ég man eftir þann tíma sem ég hef búið hérna, þá eru það hreinar ýkjur að allt sé á kafi í snjó. Á norðlenska vísu er þessi snjór á mörkum þess að teljast

Frábært!

Aldeilis frábær frammistaða. Vonandi gefur þetta tóninn með framhaldið hjá stelpunum okkar!

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband