Púkarnir á fjósbitanum

hækjurHvort ríkisstjórnin kemur hölt frá þessu ati getur tíminn einn leitt í ljós.

En það var broslegt að hlusta á viðtölin við þá félaga Bjarna Ben og Sigmund Davíð í fréttum í hádeginu. Þegar þeir voru spurðir hvort þeir teldu stjórnina þurfa að segja af sér, voru þeir snöggir að fullyrða, afdráttarlaust, að stjórnin þyrfti ekki að segja af sé út af þessu máli.

Það er deginum ljósara að þeir kæra sig hreint ekkert um að taka við stjórnartaumunum. Þeimborn_bad_little_devil_heart_tattoo vex verkið í augum og hafa ekki kjark til að takast á við það og fá hland fyrir hjartað af tilhugsuninni einni.

Þeim hugnast betur að vera í stjórnarandstöðu,  nærast eins og púkinn á fjósbitanum og  ólmast og andskotast út í allt og alla sem reyna að mjaka málum fram veginn.

.

 
mbl.is Undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég er sammála þessu mati þínu á þeim svarabræðrum. Hitt er verra mál að ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms er getulaus og ráðalaus. Það er auðvitað ósvinna að segja að þessi ríkisstjórn hafi engu áorkað; skárra væri nú!

Á öllum tímum eru starfandi hinar ýmsu nefndir og ráðuneyti sem vinna margþætt fjósverk til að létta stjónvöldum mjaltastörf og búreikninga. Aftur á móti sjást svo ennþá engin merki um framtíðaráform með vaxandi þjóðartekjur að markmiði og viðbrögð til að hamla atvinnuleysi.

Það er hlutverk allra ríkisstjórna og þar er auðvitað aðalatriðið að virkja þjóðina sjálfa til eigin frumkvæðis við að koma á fót stórum sem smáum fyrirtækjum og þar dugar ekki exel forritið. En þar reisa okurvextir bankanna öllu framtaki ókleifa múra í dag.

Árni Gunnarsson, 5.1.2010 kl. 18:04

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Árni það er ekki gæfulegt, þegar lítill hópur stjórnarliða þvælist fyrir stjórnin í hverju málinu eftir annað í eltingarleik við titlingaskít og draumóra.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2010 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.