Gjafmildi

Mér datt í hug að mikið væri það gott ef Íslenskir auðmenn fengju sömu flugu í höfuðið og þessi Austurríski miljónamæringur og gæfu eigur sínar. En við nánari hugsun sá ég að þetta væri fullkomið bull hjá mér.

Íslenskir auðmenn eiga ekkert, virðast raunar aldrei hafa átt neitt nema skuldir. Skuldir sem þeir hafa, af rausn sinni, þegar ánafnað Íslensku þjóðinni.


mbl.is Ætlar að gefa allar eigur sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Austurískur reyndar, en að öðru leyti rétt hjá þér.

Páll Geir Bjarnason, 9.2.2010 kl. 14:58

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir ábendinguna Páll.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.2.2010 kl. 15:02

3 identicon

Reyndar ekki rétt heldur því að Austurríki er með tveimur r-um sbr. orðabók Menningarsjóðs og austurrískur með litlum staf, sbr. England er með stórum staf en enskur er með litlum staf.  Bara muna eftir stafsetningunni frá barnaskólanum. 

Guðjón Baldursson (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 17:55

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já, góðann daginn Guðjón

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.2.2010 kl. 18:02

5 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Þú ert að tala um sg og sk regluna, Guðjón.

Annars held ég, að ef þessi íslensku auðmenn kærðu sig um, þá eiga þeir örugglega helling af pening einhversstaðar í Cayman eyjunum. En eins og ástandið sannar, þá hugsa þeir bara um rassgatið á sjálfum sér.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.2.2010 kl. 18:03

6 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ég verð nú að segja að Axel er nú nokkuð góður Íslensku:) En alveg sammála Ingibjörgu annars.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 9.2.2010 kl. 21:29

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það Silla

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.2.2010 kl. 22:41

8 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Silla; Hann er það. Þess vegna er örlítið skondið að sjá að þungmiðja athugasemda sumra er hvorki blogg né fréttin, heldur málfræði + stafsetningarvilla blogghöfunds. ;)

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 9.2.2010 kl. 23:50

9 identicon

Er nú ekki rétt að auðmennirnar hafi "gefið" íslensku þjóðinni allar sínar skuldir og afskriftir? 

Þeir telja það örugglega rausnalega gert af sér :)

Sæmundur (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband