Líkin í lestinni.

Því er ekki að leyna að Einar Skúlason sópaði ekki beinlínis að sér fylgi, klaufskur og fráfælandi, sem má eflaust skrifa  á reynsluleysi.

En Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Framsóknarflokksins er greinilega búinn að gleyma öllum vandræðagangi flokksins í borginni á síðasta kjörtímabili.

Gunnar er búinn að gleyma Birni Inga og öllu fjaðrafokinu kringum hann.

Gunnar er búinn að gleyma því þegar Óskar, keyptur inn í borgarstjórn af Eykt, sveik og leiddi Íhaldið til borðs.

Gunnar er búinn að gleyma fatakaupamálinu mikla.

Gunnar er búinn að gleyma Alfreðs þætti Þorsteinssonar svo fátt eitt sé nefnt.

Gunnari ætti manna best að vera ljóst, að þó sitthvað megi að Einari Skúlasyni finna, þá fékk Einar  of mörg lík í lestinni í meðgjöf frá flokknum til að eiga minnstu möguleika á sæti í borgarstjórn.  

Þó Gunnar vilji ekki muna það þá gerðu kjósendur það greinilega.

 
mbl.is Framsókn þarf nánari naflaskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan dag. Mikið er ég sammála þér Axel, Gunnar Bragi er fljótur að gleyma eins og frammara er siður. Þá verður fróðlegt að sjá þegar GIFTARMÁLIÐ verður skoðað af alvöru, þar eru nú nokkur lík í lestini td. Þórólfur Gíslason allsráður á Króknum og þar sem að þú Axel ert frá Skagaströnd þá vert að minna á kaup FISK á togurum Skagstrendinga, hvaðan komu þeyr aurar, kanski úr Giftarsjóðum ?

Þorleifur H. Óskarsson (IP-tala skráð) 1.6.2010 kl. 10:56

2 Smámynd: Hörður Halldórsson

Sammála.

Hörður Halldórsson, 1.6.2010 kl. 12:34

3 Smámynd: Hamarinn

Svo má ekki gleyma Guðjóni Ólafi Jónssyni sem sagðist vera með hnífasett í bakinu frá Birni Inga.

Hamarinn, 1.6.2010 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.