Nánös

Ekki hefur þakklætið rist djúpt hjá eiganda peninganna miðað við nánasarleg fundarverðlaunin. 

100 dollarar af 26.500, eru 0.37%, sem varla telst rismikið þakklæti.Væru ekki eðlileg fundarlaun svona  5 til 10% ?

 

 


mbl.is Leigubílsstjóri skilaði peningatösku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Promotor Fidei

Hjartanlega sammála. 1.000 dollarar hefðu verið algjört lágmark. Svona níska er ekki beinlínis hvetjandi til þess að fólk tileinki sér heiðarleika.

Promotor Fidei, 15.6.2010 kl. 11:14

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Satt er það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.6.2010 kl. 12:17

3 identicon

Ég hef nú reyndar alltaf verið á móti fundarlaunum í flestum tilvikum. Heiðarleiki þannig að menn skili því sem þeir finna á að vera sjálfsagður hlutur og það á enginn að græða á því. Hins vegar er allt í lagi að láta manninn hafa eitthvað fyrir það vesen sem hann gekk í gegnum en það á ekki að vera tengt verðmæti þess sem fannst.

Axel (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 13:15

4 identicon

Ef ég myndi týna stórum upphæðum þá fyndist mér alveg sjálfsagt að greiða þeim sem skilaði peningunum til mín... 10% er ágætis tala held ég.

Ég færi þá glaður í bragði með 90% af einhverju sem hefði verið búinn að afskrifa á meðan sá sem skilaði færi glaður með 10%

andri (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 13:25

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nákvæmlega Andri.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.6.2010 kl. 13:39

6 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Kannski eitthvað til í þessu, en ég myndi alveg sætta mig við þakkir. Ég safnaði alltaf öllum veskjum og símum og öðrum verðmætum sem fólk týndi á meðan ég vann í miðbæ Reykjavíkur.

Hefði ég viljað gróða hefði mér ekki komið til hugar að skila einu né neinu. Hrein samviska var mér mikilvægari. 

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 15.6.2010 kl. 17:16

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það þykir eðlilegt, m.a. hér á landi að fundarlaun séu greidd í svona tilvikum, enda hvetur slíkt til skilvísi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.6.2010 kl. 18:08

8 identicon

Mér finnst þetta frekar græðgi í ykkur.

Hann á að skila þessu því það er það eina rétta í stöðunni. Svo hefur hann eflaust einnig bjargað starfsmanninum frá því að vera rekinn úr starfi. Hvað haldið þið að starfsmaðurinn sé lengi að vinna fyrir 100 dollurum? (efast um að eigendur peninganna borgi fundarlaunin).

En þarf góðverk að kosta eitthvað?

Ég myndi amk sætta mig við þakkir og það að geta verið stolt af sjálfri mér og foreldrum mínum til sóma. Þannig er ég alin upp.

Skil bara ekki afhverju það þarf alltaf að græða á öllu!

Hvað varð um smá náungakærleik?

ella (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 18:14

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Gott væri að allir væru jafn góðir og þú ella.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.6.2010 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.