Þingmaður á þroskabraut.

Það er að skilja á þessu bulli í Birgi Ármannssyni að hann hafi vitað svörin við spurningunum, en samt spyr hann.

 

Mér lærðist mjög ungum tilgangsleysið í því að spyrja um það sem ég þegar vissi.

 

Birgir á eftir að læra þetta, það kemur örugglega með tíð og tíma, ég hef fulla trú á því.

 

 


mbl.is Svörin gefa villandi mynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birgir á kannski eftir að læra að spyrja ekki spurninga sem hann veit svörin við, en hann veit alla vega það sem blessaðir stjórnarliðarnir vita ekki að hann er á þingi fyrir þjóðina ekki sjálfan sig. Þess vegna spyr hann til að þjóðin fái svörin beint frá forsætisráðherra. Það virðist alla vega vera eina leiðin til að fá eitthvað að vita. Því nýja opna stjórnkerfið þar sem allt er uppá borðinu virðist ekki vera opið almenningi, allavega hef ég ekki fundið borðið ennþá.

sigurður Sigurðarson (IP-tala skráð) 24.6.2010 kl. 23:13

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ef það er ætlun stjórnarandstöðunnar er að upplýsa almenning um "leyndarmál" stjórnarinnar væri ráð að senda fram einhvern skarpari fótgönguliða en Birgi. Svo mætti sá hinn sami vera ögn viðkunnanlegri að ósekju.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.6.2010 kl. 23:21

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er auðvita ætlun stjórnarandstöðunnar á hverjum tíma Axel, að upplýsa almenning um leyndarmál stjórnarinnar, séu þau til og til þess er hún.

Er Birgi ekki jafn heimilt að afla þeirra upplýsinga eins og öðrum?  Er Birgir að þínu mati vanþroskaður eða illa að sér til fótanna? 

Birgir á eflaust eftir að læra margt Axel og mig grunar að það eigi við þig og mig líka.  Það undarlega við núverandi ráðherra er að þeir reyna helst að svara í lausu lofti en als ekki á pappír. 

Þó að við séum agalaus þjóð vegna þess að við höfum engan her þá finnst mér ástæðu laust að líða agaleysi í þinghúsinu.   Ráðherrum er ætlaður rúmur tími til að svara og þeim er óheimilt að segja ósatt. Ekkert svar er eingin sannleikur jafnvel þó um heilaga Jóhönnu sé að ræða.     

Hrólfur Þ Hraundal, 25.6.2010 kl. 00:37

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Persónutöfrar manna er misjafnir Hrólfur, sumir geisla af sjarma þó þeir hafi ekkert annað til brunns að bera.

Aðrir eru geislandi gáfaðir en gersamlega lausir við allan sjarma. Fáir hafa hvorutveggja sjarma og gáfur.

Svo eru aðrir sem hafa hvorugt, Birgir blessaður er án alls vafa í síðast talda hópnum hvað sem góðum ásetningi hans kann að líða.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.6.2010 kl. 01:33

5 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Birgir gerir bara ógagn.  Hann og Siguðrur Kári eru viðrini sem hafa engan annan  tilgang í lífinu nema þann að vera öðru fólki til ama og leiðinda.  Hafa ber í huga að þeir eru rakkar Davíðs Oddssonar og getur hann sigað þeim eftir hentugleika sem og hann gerir í ríkum mæli.  Þetta gelt í þeim er hinsvegar frekar þreytandi og þeir vita það sjálfir en hafa ekki meiri sjálfsvirðingu en það að þeir láta þetta yfir sig ganga.  Því fyrr sem þeir hverfa af þingi, því betra fyrir alla og þá sjálfa líka.

Guðmundur Pétursson, 25.6.2010 kl. 01:34

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Mæltu manna heilastur Guðmundur!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.6.2010 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.