Hvað þarf að skerða marga öryrkja til borga eina borðaklippingu?

Væri ekki ráð í svona tilfellum að samgönguráðherra og  vegamálastjóri hittust frekar í ráðuneytinu þar sem þeir gætu tekist í hendur, klippt á borða, skipst á munnvatni eða hvað eina sem nauðsynlegt er að gera svo akstur geti hafist um veginn.

Þá þyrfti ekki að stefna  upp á heiði, í sudda og súld, liði fólks, setja upp hljóðkerfi og annað tilstand til þess eins að ráðherrann geti hlustað á sína eigin rödd óma um grundirnar og þakka með hástemmdum orðum sjálfum sér fyrir áræðið , kraftinn og dugnaðinn við veginn, sem lagður var með svita og peningum annarra.

Það vekur athygli að fyrrverandi samgönguráðherrar voru ekki viðstaddir að þessu sinni og óvíst hvað veldur. Ólíklegt er að niðurskurður sé valdur að fjarveru þeirra, því sparnaður og ráðdeild  þekkst ekki hjá hinu opinbera þegar kemur að ráðherrasnobbi og öðru fíneríi og ekki líklegt að það gerist meðan hægt er að kreista aur út úr sjúkum og öðrum vesalingum sem ekki geta borið hönd yfir höfuð sér.

  


mbl.is Lyngdalsheiðarvegur opnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Af því að þú spyrð gáfulega,  þá er ekki úr vegi að spyrja hvað mætti gera við miljarðanna sem fara í aðildar umsókn að ESB? 

Hvað skyldi Össur heimshorna flakkari og hirðfífl Samfylkingarinnar kosta mörg brauð handa fátækum, varla ferðast hann á þriðja farými.

Hvað skyldu þessi tvö ár án aðstoðar við fólkið í landinnu hafa kostað mörg tár?

Hrólfur Þ Hraundal, 16.10.2010 kl. 08:19

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þú ættir að reyna að velta því fyrir þér Hrólfur, ef það er ekki er til of mikils mælst, hverjir bera raunverulega ábyrgð á ástandinu og tárunum, brennuvargarnir eða slökkviliðið.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.10.2010 kl. 08:49

3 Smámynd: Umrenningur

Þegar slökkviliðið mætir á olíubílum til að slökkva elda þá hljóta allir að sjá að úr verður mikið bál.

Umrenningur, 16.10.2010 kl. 08:57

4 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Brennuvargar eru þekktir af því að vera oftast eða alltaf á staðnum, meðan brennur, síðan býsnast þeir yfir öllu eftirá, sérstaklega slökkviliðinu.  

Bergljót Gunnarsdóttir, 16.10.2010 kl. 09:37

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Góður pistill Axel.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 16.10.2010 kl. 12:46

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Umrenningur, það var fyllt á bílana í tíð Davíðsstjórnarinnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2010 kl. 01:26

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Brennuvargarnir eru á vappi kringum bálið Bergljót og kasta á víxl, hnútum í slökkviliðið og meira brenni á bálið.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2010 kl. 01:28

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir það Heimir.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2010 kl. 01:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.