Það var lagið, Ólafur!

 

Þarna fengu Vilhjálmur lánlausi og fógetinn af LÍÚ og þeirra hyski allt, það óþvegið og verðskuldað, frá Hróa Hetti Íslands.

 
mbl.is Hættið að tala niður íslenskt atvinnulíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst óþarft að vera með einhver sniðugheit, raunar mislukkað grín,  eins og að kalla forsetann Hróa Hött. Held að við ættum að hressa okkur á að hlíða aftur á orð hans í dag. Forsetinn er langsamlega öflugast talsmaður landsins í dag - í fyllst alvöru. Hann lagði þjóðinni línur sem við getum sameinast um og komið okkur upp úr skotgröfunum og áfram til árangurs og velfarnaðar- ef við viljum. Á hinn bóginn getum við auðvitað haldið áfram að slást í leðjunni. Ég trúi því að nú sé þetta Icesave-mál að komast í eðlilegan farveg; því verði lokið með lögformlegum hætti. Jafnframt vinnur tíminn með okkur hvað endurgreiðslur varðar. Það er lán að hafa alvöru forseta, ekki puntudúkku.

Haukur Brynjolfsson (IP-tala skráð) 10.4.2011 kl. 17:51

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er ekki Haukur, að gera grín að forsetanum með því að kalla hann Hróa Hött, heldur þvert á móti.

Það hefur hingað til ekki verið talið last að vera líkt við Hróa Hött, hetjuna sem átti í erjum við Jóhann landlausa og fógetann í Nottingham og var elskaður og dáður af lýðnum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.4.2011 kl. 18:14

3 Smámynd: Björn Birgisson

Til hvers var forsetinn að halda blaðamannafund í dag? Mín skýring er þessi:

Hann dauðsér eftir að hafa komið í veg fyrir lausn málsins, en sem mesti lýðskrumari Íslands, kaus hann þessa leið til að upphefja sjálfan sig og sinn málstað. Hann skaut föstum skotum á flesta málsmetandi menn landsins, sem þurfa að kljást við raunveruleikann, á sama tíma og hann er í einhverjum kóngaleik og þarf ekki að bera ábyrgð á neinu sem hann segir.

Hann er ekkert annað en lýðræðislegur hryðjuverkamaður. Veit það best sjálfur og því var yfirbreiðslufundurinn haldinn í dag. Hann ætti að fara frá á morgun, fyrir hádegið.

Bara hans vegna væri óskandi að þjóðin drullutapaði öllum þessum málum fyrir dómstólum.

Hann veit það og er orðinn skíthræddur.

Þá er sniðugt að halda yfirbreiðslufund.

Að hætti lýðskrumara.

Björn Birgisson, 10.4.2011 kl. 20:18

4 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Hægan nú Björn minn góður, láttu ekki reiðina hlaupa með þig í gönur. Forseta Íslands þekki ég persónulega af góðu og veit að þar fer grandvar maður.

Það er erfitt að fylgja þeim málsstað sem verður undir í kosningum, en það sem Íslendingar þurfa fyrst og fremst, er að standa saman á ögurstundum, því þurfum við að slíðra sverðin og vinna saman í bróðerni.

Bergljót Gunnarsdóttir, 10.4.2011 kl. 22:19

5 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Flottur Axel, Ólafur gerir mig stoltan, af að vera Íslendingur!

Aðalsteinn Agnarsson, 10.4.2011 kl. 23:54

6 Smámynd: hilmar  jónsson

Hjartanlega sammála vini mínum Birni Birgissyni.....

hilmar jónsson, 11.4.2011 kl. 12:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband