Því verr munu heimskra manna ráð reynast, sem fleiri koma saman.

Það gæti óneitanlega orðið kómískt áhorfs fjölgi keppendum Repúblikanaflokksins, af svipuðu kalíberi og þær stöllur  Sarah Palin,  og Michele Bachmann, um að verða forsetaframbjóðendur flokksins.

En það yrði ekkert grín heldur dauðans alvara kæmust slíkir ruglukollar og þær stöllur í Hvítahúsið, svo ekki væri talað um þær tvær saman, sem forseta og varaforseta.

Trúartrúðarnir Dick Chaney og George Busch voru tæpir en komast samt ekki með tærnar þar sem þær stöllur hafa háhælana í trúarruglinu.

Svo vitlausir eru Bandarískir kjósendur ekki  að kjósa kerlingarnar, hugsa eflaust margir, en bitur reynslan segir að Bandarískir kjósendur verða seint taldir þeir gáfuðustu í heimi.


mbl.is Palin segir að það sé pláss fyrir fleiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Axel Jóhann; jafnan !

Segðu þetta ekki; Axel minn.

Þessar bráðgáfuðu frúr; njóta mikils stuðnings - sem velvildar Alvizku eingyðishyggju trúmanna; hérlendra ýmissa, ekki síður, en erlendra.

Svo; sér Sarah Pálína Alaska kerling, gegnum holt og hæðir, aukin heldur.

Ekki amalegur valkostur það; fyrir nágranna okkar, í vestri, svo sem.

Með beztu kveðjum; sem fyrri /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 21:16

2 identicon

Ég vona að Óskar sé kaldhæðinn því ekki eru þessar konur bráðgáfaðar.

Arnar (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 21:24

3 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Hun [palin] aetti ad vita hvad russar eru ad gera ollum stundum. Enda med tha i bakgardinum.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 3.9.2011 kl. 21:30

4 identicon

Magnað að þarna skuli eingöngu vera hjátrúarfullir fáráðlingar í boði. Karlarnir eru sko ekkert skárri, alveg jafn geggðjaðir.

Þetta er örugglega tortímingarmáttur kristni; Menn í USA hafa verið aldir upp á kristni a'la Omega svo áratugum skiptir, þetta eru orðnir bronsaldar villimenn í jakkafötum; Í alvöru; Fucked up sko :)

DoctorE (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 22:09

5 identicon

Sæl verið þið, á ný !

Arnar minn !

Jú; kaldhæðinn var ég / og er. Nema hvað; ágæti drengur ?

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.9.2011 kl. 22:59

6 Smámynd: Magnús Ágústsson

ÓHH alltaf góður í sinni kaldhæðni, en mikið er ég innilega sammála greinarhöfundi vitið er ekkert að þvælast fyrir þessari konu 

Magnús Ágústsson, 4.9.2011 kl. 03:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband