Grillóđir Kanar

Ţađ er engu líkara en Bandaríkjamönnum finnist ţeir naktir og varnarlausir verđi frá ţeim tekin reglubundin grillun á saklausu jafnt sem seku fólki og ţá helst svörtu.

Ţađ má međ sanni segja ađ réttlćtisgyđjan bandaríska sé staurblind, ţví eftir ađ dauđadómur er á annađ borđ fallinn, er nánast ógerningur ađ hreyfa viđ honum. Allt réttarfarskerfiđ leggst á eitt ađ fullnćgja slíkum dómum, jafnvel 20 árum síđar, ţótt nýjar upplýsingar bendi sterklega til ţess ađ dómurinn hafi ekki veriđ á fullkomnum rökum reistur.

Ađ flestra mati ćtti minnsti vafi á sekt ađ vera nóg til ađ dauđadómi sé ekki fullnćgt. En eins og Kaninn praktíserar ţessi mál ţarf ekkert minna en fullkomna sönnun á sakleysi til ađ bjarga mönnum frá grillinu.

Réttafarsleg morđ á saklausu fólki er víst talinn ásćttanlegur fórnarkostnađur í ofurkappi  bandaríkjamanna ađ útdeila réttlćtinu sem best og víđast.

  


mbl.is Áfrýjun Troy Davis hafnađ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Axel, ég hélt ađ ţú vćrir ađ vísa til loftslagsmengunar í fyrirsögninni ţví jafnvel hörđustu náttúruverndarsinnar vilja hafa sitt "back-yard-coal-barbecue" í friđi á međan ţeir heimta bann á reykingar nágrannans.

Ţađ er ekki hćgt ađ gagnrýna bandarískt fyrirkomulag - slíkur er tvískinningurinn á öllum sviđum.

Kolbrún Hilmars, 20.9.2011 kl. 17:30

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Betur ađ svo hefđi veriđ.

Menn eru eina dýrategundin sem er grilluđ í heilum skrokkum óađgerđir og sitjandi.

Satt segir ţú um tvískinnunginn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.9.2011 kl. 17:37

3 Smámynd: Jens Guđ

  Sönnun á sakleysi dugir ekki alltaf til.  Skrifstofubákniđ er stundum svo ţungt í vöfum ađ ţađ ţarf heilmikinn kostnađ og langan tíma til ađ koma saklausum úr snörunni.  Ţetta er ţó mjög mismunandi á milli ríkja BNA.  Inn i ţetta ţunglamalega dćmi sums stađar spilar ađ einkarekin fangelsi hafa fjárhagslegan ávinning af ţví ađ halda föngum sem lengst á bak viđ lás og slá.  

  Góđu fréttirnar eru ţćr ađ afbrotum fćkkar í BNA ţessa dagana.  Ţađ hefur eitthvađ ađ gera međ baráttu mannréttindasamtaka.  Ég veit samt ekki alveg hvernig ţađ dćmi er.  Í flestum vestrćnum ríkjum eru 40 - 70 glćpamenn á hverja 100 ţúsund íbúa.  Í BNA eru ţeir 700.  En talan er ađ lćkka svo litlu nemur.  

Jens Guđ, 20.9.2011 kl. 22:14

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Takk fyrir ţitt innlegg Jens. Bákniđ sér um sig.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.9.2011 kl. 23:23

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband