Þetta er fótboltaandinn í hnotskurn

Er þetta ekki fótboltinn í hnotskurn, guðlegur átrúnaður stuðningsmanna á sínu liði og að samaskapi rudda- og fjandskapur í garð annarra liða og stuðningsmanna þeirra?

Þegar maður heyrir umræður um fótbolta þá snýst umræðan minnst um íþróttina sjálfa heldur hvað „okkar“ menn sú miklið snillingar en andstæðingarnir miklir hálfvitar og asnar.

Hún virðist ekki stuðla að bættum anda aðdáenda sinna og mannasiðum þessi íþrótt.


mbl.is Chelsea skammast sín fyrir stuðningsmennina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú, er það ekki, er þetta ekki apamaðurinn í okkur sem kallar eftir átrúnaðargoðum sem menn vilja slást fyrir, gera sig að öpum ha..

Annars hef ég aldrei skilið íþróttaáhorf; mér þykir það einna leiðinlegast af öllu, að horfa á íþróttir... jafnvel leiðinlegra en trúarstúss, þar er jú stundum hægt að hlægja og slá sér á hné og segja; Þetta eru nú meiri bölvuðu vitleysingarnir mar ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 16.4.2012 kl. 08:55

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég hef orðið vitni að því að vinnufélagar, fylgjendur sitthvors fótblotaliðsins, rifust daginn út og daginn inn, dag eftir dag, viku eftir viku um það eitt hvort liðið væri nú meiri aumingjar, asnar og fávitar.

Svo er ein stétt manna sem eru víst allra mestu fávitarnir. Allt normal fólk kallar þá dómara. Þeir eru víst svo illa innrættir afglapar að þeir halda undantekningarlaust með hinu liðinu og leggja "okkar" lið í einelti. Sem sagt virkilega skítlegir tappar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.4.2012 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband