Ef þetta er framtíðin hjá Benz...

Mercedes-Benz-Ener-G-Force-highway-patrol-sketch-1024x640...verður framtíðin á þeim bænum lítið fyrir augað.

Þetta er afspyrnu ljótur bíll, sem verður að teljast alger nýung hvað Benz varðar.

 
mbl.is Framtíðarjeppi Mercedes Benz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Gamli G jeppinn var nú ekkert augnayndi. Þær myndir sem ég hef séð af þessum hugmyndajeppa benda til að þar fari mun fegurri bíll, þó grillið verði látið halda sér í stíl við þann gamla.

Gunnar Heiðarsson, 17.11.2012 kl. 14:52

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Sæll Axel

Tek undir það með Gunnari að G jeppinn er nú ekki beinlínis smáfríður.

Hann er eins og einhver barnaútgáfa af Unimog.

Þessi framtíðarjeppi er meira eins og samruni af G og M jeppunum.

Ekki neitt undurfagur enda er það ekki í tískur samanber Hummerinn.

Hins vegar yrði þetta aldeilis gríðarlega góður torfærujeppi.

Takið sérstaklega eftir því hvað afturhásingin er aftarlega.

Viggó Jörgensson, 17.11.2012 kl. 16:53

3 Smámynd: Einar Steinsson

Gamli G jeppinn var ekki hannaður af Mercedes Benz og hefur aldrei verið framleiddur af þeim heldur. Mér vitanlega hefur ekki eitt einasta eintak af honum verið framleitt í Þýskalandi.

Í upphaflega G bílnum var það eina sem var frá Benz vélin og gírkassinn og nokkrir íhlutir í innréttingu.

Fyrirtækið sem hannaði hann og framleiddi hét Steyr-Daimler-Puch og framleiðslan var og er verksmiðjum þeirra í Graz í Austurríki. Fyrirtækið er löngu farið á hausinn og bílaframleiðslan var keypt af Kanadíska fyrirtækinu Magna.

M/ML jeppinn frá Benz er hannaður af þeim sjálfum en hefur heldur aldrei verið framleiddur í Þýskalandi heldur í Austurríki, Bandaríkjunum og Mexíkó.

Mercedes Benz virðast vera eitthvað feimnir við fjórhjóladrif vegna þess að 4Matic fjórhjóladrifskerfið í Benz fólksbílum var líka hannað af Steyr-Daimler-Puch og bílarnir sem voru fjórhjóladrifnir settir saman saman í Graz eins og G jeppinn.

Einar Steinsson, 17.11.2012 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband