Kristinn H. genginn í Dögun

Þar fór góður flokkur í hundskjaft!

 
mbl.is Kristinn er genginn í Dögun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Nákvæmlega Axel.

Þeir geta ekki sleppt takinu þessir gömlu rugguhestar.

Gamlir þingmenn reyna á örvæntingarfullann hátt að gera sig gildandi í nýju " fersku" framboðunum og ræna þeim þar með ferskleikanum.

Kannski er aðal vandamálið að við sitjum uppi með fólk sem setið hefur allt of lengi á þingi, fólk sem ekki er fært um að tileinka sér nýja hugsun og nýja nálgun á vandamálum.

Nei þetta eru sannarlega ekki góð tíðindi fyrir Dögun og þá sem hugðust styðja það framboð.

hilmar jónsson, 5.1.2013 kl. 15:23

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hilmar, þessum gömlu tréhestum, hvar í flokki sem þeir standa, er fyrirmunað að skilja að það er nákvæmlega engin eftirspurn eftir þeim.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2013 kl. 16:12

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég held að rétt væri að fara að setja á hámarkstíma á setu áalþingismanna.

8 ár hámark. kannski 4..

hilmar jónsson, 5.1.2013 kl. 16:29

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það mætti vel gera það Hilmar. Launin mættu líka vera skárri til að laða að aðra en undirmálsfólk.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2013 kl. 16:37

5 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ertu þá að meina hærri?

Heldur þú að fífl sækist síður eftir setu á alþingi ef launin eru hærri? ;þ

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 5.1.2013 kl. 17:10

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nei, nei fíflin sækjast eftir eftir þingsetu eftir sem áður. En með betri launum koma skárri kostir.  Hverjir kjósa fíflin, sé annað í boði?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2013 kl. 17:19

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Af hverju ætti velmenntað langskólagengið hæfileika fólk að sækjast eftir þingsetu þegar það getur fengið tvö til þreföld laun nánast hvar sem er annarstaðar?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2013 kl. 17:26

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hver segir að þó Kristinn H. hafi skráð sig í stjórnmálasamtök að hann hafi einhver yfirráð eða völd þar?  Þið vitið að þetta er bara vitleysa og til þess gert að skemma.  Mér finnst það frekar sorglegt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.1.2013 kl. 20:29

9 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hvað er ferskt við Dögun ?. Gamlir sótraftar á sjó dregnir, þingmenn Hreyfingarinnar, gamlir máttarstólpar úr Frjálslynda flokknum. Satt að segja hefur þessi flokkur ekkert við sig sem hægt er að kalla nýtt eða ferskt..með fullri virðingu fyrir þeim sem þarna mæta.

Jón Ingi Cæsarsson, 5.1.2013 kl. 20:54

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jæja Jón Ingi og Samfylkingin, VG eru svo fersk ekki satt?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.1.2013 kl. 21:30

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ásthildur ertu að segja að Sleggjan ætli að taka þátt í pólitískri starfsemi Dögunar sem hlutlaus áhorfandi ofan úr stúku? Ég trúi því þegar ég sé það.

Ef þau ummæli sem hér hafa verið viðhöf eru sögð af illgirni og skemmdarhug hvað má þá segja um ummæli sem hafa m.a. komið frá fólki í Dögun um aðra stjórnmálaflokka og einstaklinga þar sem stóru orðin eru ekki spöruð? Ekkert sorglegt þar á ferð?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2013 kl. 22:39

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú það er sorglegt ef svo er, geturðu bent mér á dæmi Axel minn?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.1.2013 kl. 23:33

13 Smámynd: Theódór Norðkvist

Framboðið á Kristni H er eflaust meira en eftirspurnin. Auk þess skil ég ekki hvernig það getur talist frétt að alræmdur farandstjórnmálamaður gangi til liðs við enn einn flokkinn.

Hann á að vísu ennþá eftir að ganga til liðs við N1-flokkinn, ætli það sé ekki næst á dagskrá?

Theódór Norðkvist, 6.1.2013 kl. 02:11

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Get, en geri ekki þó mér verði virt það til verri vegar.

Ég hef ekki enn áttað mig á því hver hin meintu skemmandi ummæli eru.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.1.2013 kl. 09:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.