Höfuðlaus her

Það  hlýtur að nálgast hámark heimskunnar að vera með lögheimili erlendis og vera ekki kjörgengur en ætla samt að leiða framboðslista hér á landi.

Kjósendur hljóta að spyrja sig hvernig limirnir séu, ef svona er höfuðið.

En þetta breytir engu fyrir Guðmund Franklín persónulega, líkur hans að komast á þing eru nákvæmlega þær sömu eftir sem áður.

  


mbl.is „Þetta er auðvitað bölvað klúður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Maður myndi halda að við þessar aðstæður vilji menn hafa hlutina á hreinu.  Hér þýðir ekkert " ég hélt" eða "þetta er klúður" eða what ever.  Víst er þetta klúður, en það er óafsakanlegt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2013 kl. 22:07

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ekki treysti ég manni fyrir horn sem hefur ekki hugmynd um það hvar hann er til húsa.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.4.2013 kl. 22:15

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei félagi hvernig er það hægt?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2013 kl. 22:28

4 identicon

Í hvaða landi greiðir hann skattana sína?

Er það ekki í því landi sem hann er með lögheimili?

Það er alveg ljóst að Schengen er ekki að virka.

Stefán (IP-tala skráð) 5.4.2013 kl. 06:54

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Stefán, Guðmundur Franklín greiðir sína skatta ytra. Guðmundur var í útvarpinu í dag og sagðist að sjálfsögðu greiða virðisaukaskatt og þessháttar gjöld hér á landi og út á það áskyldi hann sér allan rétt.

Það sama hlýtur þá að gilda um erlenda ferðamenn sem greiða auðvitað virðisaukaskatt og aðra neysluskatta meðan á dvöl þeirra stendur hér á landi. Maður á kannski eftir að sjá Gervasoni og aðra slíka lukkuriddara á framboðslistum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.4.2013 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband