Simon Cowell, Höttukolla og nýríki Nonni

Hver ekkifréttin rekur aðra á mbl.is þessa dagana. Fréttir sem hafa minna en ekkert fréttagildi og engan sýnilegan tilgang annan en að þjóna uppbelgdum þjóðernishroka.

Hverjum hefði dottið það í hug að jólaleikrit í sunnudagaskóla í einskis-manns sveitakirkju einhverstaðar í miðjum einskis-manns afkima í Louisiana rataði í fréttir á Íslandi.  

Jú einmitt - þegar  auka-aukaleikarar í uppfærslunni reynast vera „íslenskir“. Fjórar kindur af íslensku eðalkinda kyni ráðgera að stíga á svið um jólin og hefja með því glæstan leiklistarferil. Þær munu eflaust leggja Höllívúúd að klaufum sér eins og aðrir vaskir leikarar héðan að heiman hafa gert.

Karlrembu montvindhaninn Simon Cowell  mismælti sig eitthvað um uppruna á íslensku lagi og hvað gerist? Jú einmitt- allt fer á hliðina á Mogganum og gott ef prentun blaðsins var ekki stöðvuð í miðju kafi til að skipta um forsíðu.

Svo er það þessi frétt um einhvern „nýríka Nonna“ sem bókstaflega elskar íslenska grjótið á húsgólfi sínu í Las Vegas. Svo mikið elskar Nonni íslenska gólfið sitt að hann hefur sett það á sölu og er tilbúinn að taka matador peninga sem greiðslu, losni hann bara við fjandans gólfið.

 


 


mbl.is Velur bitcoin og íslensk gólfefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvaða þunglyndi er þetta Axel svona í enda skammdegsins?

Kanski ættir þú að sleppa þvi að lesa Moggan þangað til dagurinn fer að lengjast.

Kveðjja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 16.12.2013 kl. 05:40

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er þungur baggi að bera Jóhann, ef þunglyndi mitt, litla þúfan sú er farin að hafa áhrif á efnistök Moggans. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.12.2013 kl. 05:57

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þetta kallast útvarp Sögu syndromið Jóhann

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 16.12.2013 kl. 10:07

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þakka ábendinguna Jóhannes.

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 16.12.2013 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.