"Ég hef áhyggjur af þessu, ég verð að segja það!"

 

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir á Fésbókinni:

„Stjórnarflokkarnir, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, verða að taka skoðanakannanir og mótmæli síðustu daga alvarlega. Annað væri fullkomlega óábyrgt. Við eigum að vera hér fyrir fólkið - ekki öfugt.“

Hætt er við að þessi orð  Karls Garðarssonar muni valda verulegum verkjum og  vindgangi í þingflokki Framsókn. Það er ný og framandi hugmyndafræði á þeim bænum að flokkarnir séu fyrir fólkið en ekki öfugt.

Frosti Sigurjónsson „blaðafulltrúi“ flokksins verður auðvitað gerður út af örkinni, sennilega strax á morgun,  til að útskýra (tími 5:25 og 6:50) fyrir okkur fávísum almúganum, af sínum þjóðkunna  sannfæringarkrafti og rökfimi, að Karl hafi alls ekki skrifað það sem hann skrifaði heldur eitthvað allt annað.

Gaman verður að heyra á morgun, hvað það var sem Karl vildi sagt hafa.


mbl.is „Við eigum að vera hér fyrir fólkið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

þetta er allt að hrynja í andlitið á þeim.

Meira segja Björn Bjarna er kominn með þá tillögu að draga í land

" til að bjarga andliti Sjálfstæðisflokksins " eins og hann orðar það að sinni alkunnu lipurð.

Málið er bara að andliti Sjálfstæðisflokksins verður ekki bjargað úr þessu á hvorn veg sem fer, en So What..

hilmar jónsson, 28.2.2014 kl. 23:12

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er ekki að spyrja að því á þeim bænum. Það er óframkvæmanlegt að uppfylla kosningaloforð eða fara að þjóðarvilja. En þurfi að bjarga flokknum eru allir vegir færir og ekkert til sparað.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.2.2014 kl. 23:26

3 identicon

,,Við eigum að vera hér fyrir fólkið - ekki öfugt.“

Þessi þingmaður er búsettur í Kópavogi en er þingmaður fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður eins og vigdís Hauksdóttir .  Enginn í því kjördæmi hefur séð þetta fólk eftir að það fékk vinnu á alþingi !

Hvaða fólk er það sem hann er fyrir ?

JR (IP-tala skráð) 1.3.2014 kl. 00:05

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er gjá milli þings og þjóðar og ríkisstjórnin vonar að þjóðin segi af sér, svo Sigmundur og Bjarni fái starfsfrið við helmingaskiptin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.3.2014 kl. 00:23

5 identicon

Það er bara vonandi að fleiri "óbreyttir" þingmenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks geri nú það skynsamlega og lýðræðislega og hafni þessari þingsályktunartillögu Gunnars Braga.

Bergur Ísleifsson (IP-tala skráð) 1.3.2014 kl. 06:08

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er engin hætta á því Bergur. Það er gaman að fylgjast með Framsjalla bloggurunum núna sem í tíð fyrri ríkisstjórnar mærðu Jón Bjarnason og hina villikettina fyrir mótþróann við ríkisstjórnina. Þá var það dyggð að fylgja sannfæringu sinni, enda mælt svo um í eiðstaf þingmanna.

Nú bregður hinsvegar svo við hjá þessum sömu bloggurum að það er orðin hin argasta synd að fylgja sannfæringu sinni.  Flokkshollustan og fylgispekt við leiðtoganna er ofar öllu, eiðstafurinn verður að víkja.

Ég hygg að nú þegar sé búið að leiða Karli Garðarssyni það fyrir sjónir hvað það raunverulega var sem hann sagði og meinti. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.3.2014 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband