Fláráður og vinur hans Flækjufótur

Engum þjóðum er betur treystandi en Bretum og Bandaríkjamönnum til að haga baráttunni gegn öfgahópum og hryðjuverkum með þeim hætti að útkoman verði þveröfug við sett markmið.

Sameiginlegur aðgerðarhópur (sakleysislegt heiti á manndrápurum) með tilheyrandi leyniþjónustu verður settur á laggirnar í þessum tilgangi. Leyniþjónustur hafa þann leiða ávana að treysta engum og jafnvel ekki valdhöfum eigin lands. Því gæti slík starfsemi, sem þjónar tveimur herrum, orðið litrík og hættuleg þeim sem síst skyldi.


mbl.is Bandalag gegn hryðjuverkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála, en það eru nú meðmæli með þeim að treysta ekki valdhöfum eigin lands. Ef þær væru að störfum hér, myndirðu vilja að þær treystu valdhöfum þíns lands? Ekki myndi ég treysta neinum sem treysti Sigmundi.

Sigurður (IP-tala skráð) 17.1.2015 kl. 02:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband