Hræsni páfagarðs

Manni hlýnar alltaf um hjartaræturnar þegar páfagarður boðar bætt siðferði öðrum til handa.

Páfagarður hefur fram að þessu ekki séð ástæðu til yfirlýsinga um líferni og frjálslynt háttalag Berlusconi þótt það hafi verði daglegur fréttamatur.

En þegar frú Berlusconi gagnrýnir hátterni bóndans opinberlega þá vaknar Vatikanið og leggur áherslu á að sýnd sé meiri nærgætni og meira tillit tekið til friðhelgi einkalífsins og allir verði að haga sér af yfirvegun og alvöru!

Hjá kirkjunni eru eðlilega sumir töluvert jafnari en aðrir.MontyPython2

Undanfarin ár hefur því miður ekki verið skortur á miður fallegum dæmum um  mannlega harmleiki þar sem starfsmenn kaþólsku kirkjunnar hafa níðst á sóknarbörnunum.

Brást kirkjan við þeim málum af yfirvegun, alvöru og ábyrgð?

Nei, undantekningarlítið var boðskapurinn lagður til hliðar og öllu til tjaldað að kveða niður og fela óþverrann, meðan stætt var.

Það var að sjálfsögðu aðeins gert til að vernda friðhelgi og einkalíf fórnarlambanna!  

 
mbl.is Páfagarður gagnrýnir Berlusconi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Hvað eru helvítis pervertarnir í páfagarði að vilja upp á dekk? Kaþólska kirkjan er fyrirtæki sem snýst um peninga og pervertisma í skjóli trúarbragða. Svei þeim!

corvus corax, 6.5.2009 kl. 12:50

2 Smámynd: Mofi

Góð grein, þetta er auðvitað frekar ógeðfeld hræsni.  Kannski varpa auðævi Berlusconi einhverju ljósi á viðbrögð páfagarðs...

Mofi, 6.5.2009 kl. 13:25

3 identicon

Vatíkanið/Kaþólska kirkjan aka þeir sem sömdu biblíu.

Já Mofi, þú ert faktískt kaþólikki, þeir sömdu bókina þína :)

DoctorE (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.