Nú lifnar bloggið og....

....spádóms- og kuklsinnar kætast og fullyrða að þarna sé hann kominn skjálftinn sem spáð var um daginn. En það skakkar einhverjum dögum og svo ekki sé talað um að þessi skjálfti var ekkert merkilegur, rétt skreið yfir 3.

Að spá jarðskjálfta á Íslandi er svipað og spá sólskini á Spáni. Hvorugt krefst verulegrar spádómsgáfu.


mbl.is Snarpur jarðskjálfti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

eflaust.

 en athugaðu staðsetninguna og kynntu þér hvar hún sagði að jörð mundu skjálfa.

hefði verið ekkert mál að segja bara að skjálfti mundi verða á Íslandi, og síðan gerðist þetta 23:45 , hún sagði 23:15 þann 27.

þetta er bara tilviljun en skondið þó.

Aggi (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 00:38

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er allt búið að skjálfa þarna vikum saman og komið snarpari skjálftar í þeirri hrinu sem hún "sá" ekki fyrir. Hún hefði allt eins getað spáð því að verslunarmannahelgin yrði fyrstu helgina í Ágúst.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.8.2009 kl. 00:45

3 identicon

Það er ekkert skondið né spúkí við þetta... zero spúkíness, its all in your head.

DoctorE (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 00:48

4 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Hún spáði skjálfta í Krýsuvík. Þessi skjálfti var ekki þar. Ég bý á Reykjanesinu sé Keili útum eldhúsgluggann hjá mér, ég fann engan skjálfta. Enda finnast skjálftar ekki almennileg nema þeir séu allavega yfir 4 á richter. Annars er Reykjanesið búið að skjálfa hér undanfarnar vikur og það þarf engann spámann til að spá um frekari skjálfta.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 1.8.2009 kl. 00:51

5 identicon

Hún er að grípa í ímynduð strá og allt yfirnáttúrulega liðið er alveg.. VÁ þetta var rétt hólí smók... sé alveg fyrir mér að það séu bænahringir víðast hvar líka.... og fólkið fer að fara til Láru, viltu spá fyri mér... mbl kaupir af henni stjörnuspár á ofurverðum...

Ahhh

DoctorE (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 01:00

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það þarf mikinn vilja að sjá eitthvað yfirnáttúrulegt við þessa skjálftaspá.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.8.2009 kl. 01:06

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það mun hafa komið annar "snarpur" skjálfti eða 2,6 að sögn mbl.is. Að kalla þessa kippi snarpa er ofurlítið yfirdrifið.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.8.2009 kl. 01:13

8 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Þetta kalla ég ekki snarpa skjálfta. Verða að vera allavega yfir 4 til að kallast snarpir hjá mér

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 1.8.2009 kl. 01:33

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála því Sólveig.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.8.2009 kl. 01:44

10 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

það er stöðug skjálftavirkni þarna eins og víða um landið. http://www.vedur.is/skjalftar-og-eldgos/jardskjalftar/

skoðaði nokkrar vikur í vikuyfirlitinu og fann enga þar sem engir jarðskjálftar eru þarna.

Brjánn Guðjónsson, 1.8.2009 kl. 01:56

11 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er málið Brjánn og enginn spáði því, a.m.k. ekki sjáandinn mikli.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.8.2009 kl. 02:03

12 identicon

Lára heldur áfram að plögga sig undir verndarvæng íslenskra fjölMIÐLA
http://visir.is/article/20090801/FRETTIR01/634482343

Frábært.... hahahaha

DoctorE (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 11:46

13 identicon

Og að hugsa sér að hún sýni þann hroka að segja "Ég sagði það" í viðtali.  Hún er greinilega geðveikari en ég hélt.  Nú streyma allar barnalandskellingarnar í bollaspá og láta rekja úr sér garnirnar á eldhúsborðinu hjá Láru sannspáu.  Jæja það er gott að einhver er að meika monní í samfélaginu, vona bara að hún hafi samvisku til að skila skatti.

Stebbi (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 12:12

14 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Skatturinn og skilanefndir bankanna ættu kannski að ráða hana í vinnu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.8.2009 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.