Púkarnir á fjósbitanum

 

Af atburðum síðustu daga er ljóst að líf ríkisstjórnarinnar hangir á bláþræði, eða öllu heldur vinstrigrænum þræði. Engu er líkara en blóm ríkisstjórnarinnar þessa dagana sé Baldursbrá. Þar sitja púkar stjórnarinnar hver á sínum fjósbita og plokka blómið í ákafa, ....styð stjórnina, styð ekki stjórnina, styð, styð ekki.......

Vinstri grænir hafa haft sterkari skoðanir á ýmsum málum en aðrir flokkar, alveg frá stofnun flokksins í ársbyrjun 1999. Þær skoðanir ásamt öðru hafa átt þátt í að útiloka flokkinn sem valkost við stjórnarmyndun fram að þessu.

VG hefur haft það orð á sér að vera óstjórntækur flokkur og hafa þá einu stefnu að vera móti öllu.

Að hafa ákveðnar og sterkar skoðanir og standa fastur á sínu er í eðli sínu besta mál. Hugsjónir verða þó aldrei annað en hugsjónir einar, sé ekki hægt að hrinda þeim í framkvæmd. Þá hjálpar ekki að standa fast á sínu.

Sígandi lukka er best,  að standa svo fast á sínu að allt standi fast og engu verði þokað, getur ekki skilað öðru en glötuðum málstað.

Seinnihluta vetrar fengu VG það tækifæri sem þeir höfðu beðið eftir. Tækifæri sem Ögmundur Jónasson fullyrti að væri upphafið á 12 ára stjórnarsetu VG.  Nú virðist sem þrákelkni Ögmundar sjálfs, og fárra annarra, sé að sturta niður þessari draumsýn Ögmundar.

Draumur Ögmundar gæti vel orðið að veruleika væri rétt á spilunum á  haldið og þá gæti VG með hófsemi náð fram, á þeim tíma, flestum sínum baráttumálum, sem flest eru góðra gjalda verð.  

Springi þessi stjórn fyrir heimskra manna ráð, geta VG ekki vænst þess að vera talinn stjórntækur flokkur næstu 12 árin. Allar hugsjónir VG verða áfram aðeins fallegur, en giska fjarlægur draumur, sér í lagi ef Íhaldið kemst aftur til valda.

Getur það verið að það sé Ögmundi og púkunum á fjósbitanum sérstakt kappsmál að koma Íhaldinu að og drepa sína eigin drauma?

Íslenska þjóðin er í ólgusjó, við drukknun og dauðans dyr. Nú er ekki rétti tíminn að setja prinsippin í forgang og láta þjóðina mæta afgangi. Nú er ekki rétti tíminn að hafna bjargræðinu og möguleikanum til lífs til að  ná fram  tilfinningaþrungnum  hugsjónum og draumsýnum.

Fari allt á versta veg, hvers virði verða hugsjónir þá?

  
mbl.is Vill óráðsíu og græðgi burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þessi pólitík er vandamál - almenningur gleymist

Jón Snæbjörnsson, 5.10.2009 kl. 21:21

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jón, ég skil ekki fólk sem heldur að það geti unnið kapphlaup með því að hlaupa í sömu sporum og trampa á tánum á sjálfum sér.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.10.2009 kl. 21:26

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

skil það ekki heldur - það eru svo margir hér úti sem hafa bara ekki tíma í svona nokkuð

Jón Snæbjörnsson, 5.10.2009 kl. 21:41

4 Smámynd: Auðun Gíslason

Það væri kannski rétt að senda Ömma þetta?

Auðun Gíslason, 5.10.2009 kl. 23:05

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þjóðstjórn við höfum ekkert val. Þessi stjórn er að láta kúga sig með því að neyða okkur til að skrifa undir vonlausa samninga um icesave og sér ekkert nema ESB kjaftæðið sem kemur okkur endanlega í glötun og sérstaða okkar tapast með því sama. Burt með AGS hann hefur ekkert gert nema slæmt fyrir þær þjóðir sem hafa beðið um aðstoð hans

Sigurður Haraldsson, 6.10.2009 kl. 00:25

6 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

"...og sér ekkert nema ESB kjaftæðið sem kemur okkur endanlega í glötun"...

Bíddu, veist þú eitthvað sem við hin vitum ekki Sigurður Haraldsson?

Ég held að flestir sem kæra sig um að vita það, séu sammála um það að við getum hvorki fullyrt af eða á með þessi mál fyrr en við höfum það svart á hvítu fyrir framan okkur.

Og þegar að því kemur, þá fáum við þann heiður að segja "nei" eða "já" við honum.

Vinstri-hægri-snú. Og hananú.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 6.10.2009 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband