-Fyrr var oft hjá klerki kátt-

Í ljósi sýknu sr. Gunnars fyrir Hæstarétti á hann örugglega, samkvæmt ýtrustu lagana túlkun, rétt á að snúa aftur til starfa.  

En um það er ekki deilt að prestinum varð verulega á og braut siðferðislega gegn sóknarbörnum sínum og því liggur eftir trúnaðarbrestur milli hans og sóknar.

Málið snýst því ekki um lagalegan rétt  prestsins að snúa aftur heldur siðferðislegan rétt hans. Það þarf í sjálfu sér ekki að vera undarlegt þótt sr. Gunnar frekar en margir aðrir sjái ekki sína eigin bresti. En það er öllu undarlega þegar aðrir prestar stíga fram og lýsa yfir stuðningi við siðferðisbrest prestsins.

Spurningar hljóta að vakna hjá fólki hvort allt sé með feldu hjá þeim prestum sem sjá ekkert athugavert við háttsemi  sr. Gunnars og verja hana.

Sem rök vitna varðliðar Gunnars í dóm Hæstaréttar og  segja lögin æðri kirkjunni, og þá boðskap Krists um leið. Ekki það að ég sé ekki sammála því,  en maður hefur átt því að venjast að prestar hafi reynt að halda því gagnstæða að fólki.

En hér ráða víst hentugleikar eins og gjarnan viljað hefur brenna við hjá blessaðri kirkjunni.


mbl.is Fundurinn hófst með fjöldasöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, ég tek undir með þér eitthvað hlýtur að vera bogið við siðferðiskennd þessara presta sem verja svona hegðun. Mér finnst  við eiga rétt að vita hverjir þetta eru. Einfaldlega til þess að við séum ekki að senda börnin okkar í fermingafræðslu eða annað æskulýðsstarf hjá þeim. Ekki vildi ég að senda mín börn til þessara manna svo mikið er víst

Guðrún Óladóttir (IP-tala skráð) 16.10.2009 kl. 21:58

2 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Vel mælt. Gunnar er rúinn trúnaði fjölmargra sóknarbarna. Hlutverk prests snýr mikið að sálgæsu og ætti ávalt að vera á faglegum nótum.

Bryndís Böðvarsdóttir, 16.10.2009 kl. 22:04

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 hverjir fjórir prestanna eru, þá frétt má sjá hér.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.10.2009 kl. 22:20

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég hef lengi þekkt til Gunnars og allt þetta mál kom mér mjög á óvart.

Sigurður Þórðarson, 17.10.2009 kl. 01:46

5 Smámynd: Baldur Hermannsson

Gunnar minnir mig á þverhausinn sem lenti í hörðum árekstri og þegar verið var að skera hann út úr bílflakinu, alblóðugan og deyjandi, heyrðist hann tuldra andlátsorðin: ég var í rétti....

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 09:47

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sigurður, ég hef heyrt sögur af Gunnari þegar hann var fyrir vestan. Þær bera ekki beint með sér að hann geti ekki verið hinn vænsti maður að flestu leiti. Frekar það að Gunnar virðist hafa þetta eitthvað, sem þarf til að hræra í öllum nornapottum, meðvitað eða ómeðvitað.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2009 kl. 10:45

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Baldur, þessi er frábær, ha, ha, ha, hittir í mark.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2009 kl. 10:46

8 Smámynd: Baldur Hermannsson

Gunnar er auðvitað besti karl, en hann þekkir ekki mörkin. Biskupstötrið er að kasta til hans bjarghringnum ern Gunnar gefur honum fingurinn. Þetta lið kann sig ekki.

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 10:48

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Fullur aðskilnaður ríkis og kirkju er orðið brýnt mál.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2009 kl. 11:07

10 Smámynd: Baldur Hermannsson

Sammála. Það er ekki eftir neinu að bíða.

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 11:15

11 Smámynd: hilmar  jónsson

Tek undir. Það er með ólíkindum mikil tímaskekkja að kirkjan skuli enn vera á vegum ríkis.

hilmar jónsson, 17.10.2009 kl. 14:15

12 Smámynd: Finnur Bárðarson

Aðskilnað takk. Er enginn flokkur sem hefur það á dagskrá ?

Finnur Bárðarson, 17.10.2009 kl. 14:28

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Borgarahreyfingin hefði örugglega stutt aðskilnað en nú er hún farin heim til helvítis og líður vel.

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 15:18

14 Smámynd: Björn Birgisson

Þjóðaratkvæði um aðskilnað. Það er málið. Lýðræðisleg afstaða tekin til málsins. Punktur.

Björn Birgisson, 17.10.2009 kl. 15:19

15 Smámynd: Baldur Hermannsson

OK, en er eðlilegt að prestar og þeirra fólk fái þá að greiða atkvæði?

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 15:21

16 Smámynd: Björn Birgisson

Já, rétt eins og sauðtryggir íhaldsmenn mega kjósa til Alþingis. Allir vita hvar þeir krossa. Kristsmenn mega líka krossa.

Björn Birgisson, 17.10.2009 kl. 15:27

17 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ekki sambærilegt. Þegar verður hagsmunaárekstur víkja menn af fundi og láta hina kjósa.

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 15:49

18 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég held að stjórnmálaflokkarnir séu allir skíthræddir að taka afstöðu í málinu af einhverju misskyldum ótta við fylgistap.

Þá ekki hvað síst núna þegar kristilegur flokkur er í burðarliðnum með "súperstjörnur" í broddi fylkingar og með kærleik, umburðalyndi og víðsýni sem höfuð stefnumál......eða þannig.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2009 kl. 15:54

19 Smámynd: Baldur Hermannsson

Það er enginn grundvöllur fyrir kristilegt framboð. Ekki blanda saman trúmálum og pólitík.

Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 15:57

20 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvarflar ekki að mér Baldur, ég var að benda í nr 18 á síðu kristilegs stjórnmálaflokks en liturinn á tilvitnuninni  kom ekki fram.  

Þeir sem að síðunni standa setja allt í sömu skál þótt þar sé lítill skilningur á því þegar múslímar grauta sama trú og pólitík, sem er slæmur kokteill. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.10.2009 kl. 16:20

21 Smámynd: Björn Birgisson

Ekki blanda saman trúmálum og pólitík segir Baldur. Sammála því, en það er bara svo algengt að prestar séu að vasast í stjórnmálum, sem er mjög óheppilegt. Mér finnst líka að læknar eigi að láta stjórnmálin eiga sig. Líka dómarar, líka Sjálfstæðismenn .......

Björn Birgisson, 17.10.2009 kl. 16:35

22 Smámynd: Sigurður Helgason

Kristnir menn geta ekki farið í framboð, þeir sem komast á þing verða að sverja eið um að fara eftir lögum,,,,,,,

Biblían segir að menn eigi að fara að lögum, nema þegar það stangast á við lög guðs,

Hvað ætla þá þeir svokölluðu kristnir menn að gera,

Sigurður Helgason, 17.10.2009 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband