Er Mahmud Ahmadinejad til?

Mahmud Ahmadinejad meintur forseti Írans ætti að íhuga hvort hans eigin tilvist sé ekki haugalygi.

Hefur einhver séð þennan mann?

Nei – hélt ekki.


mbl.is Hryðjuverkaárásirnar „haugalygi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ótrúlegt þetta fólk og er það furða þótt BNA og bandamenn séu skít logandi hræddir við það að álíka ógeðfellt ríki og Íran komist yfir kjarnavopn...?  Þessi maður er skepna, lygari og hættulegur alþjóðasamfélaginu

Baldur (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 21:41

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

BNA er eina ríkið sem beitt hefur kjarnorkuvopnum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.3.2010 kl. 21:49

3 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

BNA er jú eina ríkið sem hefur beitt kjarnavopnum. En þeir hafa haft þau sl. 65 ár án þess að beita þeim.

Íranir vilja eignast þau til að beita þeim, ekki til að stinga þeim í frysti.

Ingvar Valgeirsson, 6.3.2010 kl. 21:55

4 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

BNA er eina þjóðin sem hefur beitt kjarnorkuvopnum GEGN öðru ríki, en ekki eina þjóðin til þess að prófa kjarnorku vopn.

Síðasta sprengjan sem þeir sprengdu var í tilraunaskyni, 1973.

Sovétríkin, er þau lifðu, voru með tilraunir allt til undir 1989. 

Svo ekki sé minnst á það að því hefur lengi verið hent á borð, og trúað, að ríki á við Bretland, Frakkland, Pakistan, Indland, Norður-Kórea, Ísrael og Kína búi yfir kjarnorkuvopnum. Þótt ég fullyrði það ekki.

En hvort sem það er satt eður ei, þá er það staðreynd að öll eiga þessi ríki einhverja óvini, sumir eiga þegar í deilum.. Og það eina skrítna við það er, að Íran hefur búið yfir þekkingu kjarnorku í lengri tíma og hafa lengi klæjað í fingurna við að fá að nýta þessa orku. Og allir hoppa beint út í djúpu laugina hvað varðar ásakanir að þeir vilji fara beint út í þróun vopna? 

Og hvað verra er, að allir virðast hlaupa undir bagga og verja Bandaríkjamenn, sem einmitt er herská þjóð sem býr yfir kjarnavopnum, þegar þeir byrja að troða nefinu sínu þar sem það hreinlega á ekkert heima. Hvað með vopnin þeirra? Er þeim frjálst að eiga þau, án þess að spyrja hvorki kóng né prest, einungis vegna hversu langt er síðan þeir sprengdu Hiroshima, sem þeir hafa nota bene, aldrei reynt að bæta almennilega fyrir..

Mér finnst að fólk ætti að líta kannski aðeins meira á hinar þjóðirnar sem búa yfir kjarnorku og kjarnavopnum, í stað þess að einblína á land sem vill setja af stað tilraunir með kjarnorku sér til framfleytingar. Er nokkuð viss um að ef þetta væri vestrænt ríki, þá væru ekki margir sem myndu voga sér að opna þverrifuna..

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 6.3.2010 kl. 22:14

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ingvar, það er ekki hægt að fullyrða slíkt, ekki það að það hugnist mér að fleiri ríki eignist slík vopn. En fátt er uppi um þennan ásetning Írana en fullyrðingar BNA. Þetta sama BNA fullyrti að Saddam byggi yfir gereyðingarvopnum til að vinna innrás í Írak fylgi. Sú fullyrðing var ekki aðeins röng heldur rakalaus lygi frá a til ö. Eru þeir eitthvað trúverðugri núna?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.3.2010 kl. 22:25

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Inga, BNA er fyrst og fremst umhugað um hverjir eiga slík vopn. Bandaríkin leggja t.a.m. blessun sína á kjarnorkuvopnaeign Pakistans af því að þeir flokka landið til sinna bandamanna. Einn vanstilltur herforingi gæti hæglega breytt því á morgun.

Ég sé satt að segja ekki mikin mun á Pakistan og Íran, hvernig sem á málið er litið. Margt er skilt með kúk og skít þótt á sé settur glassúr.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.3.2010 kl. 22:32

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ingibjörg: Öll ríkin sem þú telur upp búa yfir kjarnavopnum, þeir einu sem reyna opinberlega að leyna þeirri staðreynd eru Ísraelsmenn. Þeir hafa aldrei skrifað undir sáttmála um bann við útbreiðslu kjarnavopna og eru ekki undir eftirliti Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.3.2010 kl. 02:58

8 identicon

Mamoud  Amadinejad    er  greinilega   alvarlega  geðveikur  eins  og   ,,ídólið"   hans   Mahúmet  hinn  sjálfskipaði   sendiboði  Allah.

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband