Heill þér sjötugum Ómar og til hamingju Ísland að eiga svona mann.

Það er virkilega gleðilegt að þessi drenglyndi, ósérhlífni og ótrúlega afkastamikli baráttumaður skuli geta, með samstilltu átaki þjóðarinnar, horft áhyggjulaus fram á veginn.

Friðrik Weisshappel á heiður skilið fyrir að hafa haft frumkvæði að því að þjóðin gæti sýnt í verki þakklæti  sitt fyrir allar þær gleðistundir sem Ómar Ragnarsson hefur fært henni í gegnum árin.


mbl.is Ómar orðinn skuldlaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Tek undir hvert orð Axel

Finnur Bárðarson, 24.7.2010 kl. 17:41

2 Smámynd: Landfari

Sama hér Finnur. Vel orðað Axel

Landfari, 24.7.2010 kl. 18:34

3 identicon

Ommi?...ja já...ég er nú hraeddur um thad.  Mikill energybolti thessi Ommi.  Ekki laust vid ad madur sé stoltur af íslendingunum sem gáfu honum peninga.

Til thín sem gaf Omma peninga:  Thú ert gód manneskja!

Ommi...aetti ad kaupa sér rjómaís med jardarberjabragdi í tilefni dagsins.  Hann verdur thó ad hafa í huga ad hann á á haettu ad fá blödruhálskrabbamein ef hann gerir thad.  Prostate cancer!  Samkvaemt töflu sem sást hér í athugasemdum vid pistil höfundar virdist vera fylgni milli mjólkurneyslu og blödruhálskrabbameins.  Thess vegna hef ég ákvedid ad neyta aldrei aftur mjólkurafurda í mínu lífi og ég hef ákvedid ad deyja 2065 svo thad verda 55 ár án mjólkurafurda.  Thad verdur létt thví mjólk og mjólkurafurdir eru ótharfa faeda fyrir fullordid fólk.

Til hamingju Ommi og gjafmildir landar.

Vatn er best (IP-tala skráð) 24.7.2010 kl. 18:41

4 identicon

Ommi?

Ómar Ragnarsson (IP-tala skráð) 24.7.2010 kl. 22:13

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Vatn er best, þú hefur komið þessum boðskap á framfæri á þessu bloggi áður undir höfundarnafninu:  -Ostur er thá ekki veislukoster ef vel er ad gád-

Það er óþarfi að gera það oftar. Svo þætti mér vænt um að menn séu  nefndir réttum nöfnum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.7.2010 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband