Syndugur satans lýður

Hvað merkir það að svart skattkerfi hafi verið inni í bönkunum? Merkir það að bankarnir hafi skipulega tekið þátt í skattsvikum með völdum viðskiptavinum?

Hverjir bera ábyrgð á því, eru það ekki stjórnendur bankanna eða verður syndin skrifuð á kennitölu bankans eins og gert var í samráðsglæp olíufélaganna?

Er ekki kominn tími til að sækja bankastjórnendurna og hengja til þerris? Er það ekki vinnureglan þegar  smákrimmar eiga  í hlut, að þeir eru sóttir og að þeim saumað?

   
mbl.is Hundraða milljarða skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjartanlega sammála - hvar eru þessir margumræddu stjórnendur sem voru á ofurlaunum vegna ábyrgðar sinnar? Bera þeir ekki ábyrgð á því sem fram fór innan bankanna - þeir voru jú bankaSTJÓRAR!

 Nú væri æskilegt að sjá tekið af hörku á svona málum - ekki bara á þeim sem sviku með skipulegum hætti offjár undan skatti heldur líka öllum þeim sem aðstoðuðu þá við að gera það! 

 Kanski að þarna finnist þá peningarnir sem okkur vantaði fyrir þessum Icesave reikningi?

Guðrún (IP-tala skráð) 16.3.2010 kl. 13:18

2 Smámynd: Hamarinn

Til hvers heldur þú að við smákrimmarnir séum?

Hamarinn, 16.3.2010 kl. 13:21

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Guðrún, hann styttist stöðugt kveikurinn í almenningi .

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.3.2010 kl. 13:23

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Einhverja verður að hafa til blóra fyrir aðalinn, Sveinn

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.3.2010 kl. 13:26

5 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sammála hverju orði hér

Jón Snæbjörnsson, 16.3.2010 kl. 13:48

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.3.2010 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.