Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Sigmundur Er... verður fyrir svörum

Í viðleitni sinni að fá krassandi frétt um stöðuna innan Samfylkingarinnar hringir mbl.is í Sigmund Er...  en því miður fyrir Moggann virðast þeir hafa hitt á kappann allsgáðan.

Sigmundur Er... veður ekki í vitinu, í glasi eður ei. Hann verður seint blaðafulltrúi Samfylkingarinnar trúi ég.


mbl.is Stendur og fellur með VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, já, já,....

Með þessu fjandans foræði verður gyrt fyrir alla möguleika á launahækkunum í náinni framtíð, því hækki launin hækka afborganir vonlausra lána. 

"Gábulegt" eins og einhver sagði.

Eru það talsmenn félagshyggjuflokkana sem standa fyrir þessu?

Sé verðtrygging lána vitlaus þá er binding lána við launavísitölu enn vitlausari og háskalegri.

Til fjandans með þessa hugsun Árni Páll og ef þetta er það besta sem þú getur upphugsað fyrir þína umbjóðendur, þá til fjandans með þig!

PS.

Með þessu verða laun múlbundin næstu þrjátíu árin.

Hvar er helvítis gráskeggjaða hagfræðinga stóðið á ASÍ núna? Er verið að rýna í Friedman?

 
mbl.is Borgað af lánum eftir tekjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég...

..."fíla" þetta.

 


mbl.is Fíll á flótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungir Framsóknarmenn sjá ljósið.

Það ætti að vera forgangsmál að skaffa ungum Framsóknarmönnum allar hugsanlegar getnaðarvarnir og algerlega frítt.

Það verður þjóðhagslega hagkvæmt,  þegar til lengri tíma er litið. Whistling


mbl.is Ungir framsóknarmenn vilja ódýrari getnaðarvarnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðbjörgin kveður

Auðbjörg HU 6 ex Hinrik, 22. tonna eikarbátur smíðaður á Akureyri 1960  fór í sína síðustu ferð í dag. Báturinn var keyptur til Skagastrandar 1977 en hefur verið munaðarlaus og staðið út á görðum í dráttarbrautinni á Skagaströnd í nokkur ár.

Í dag var hann dreginn yfir á sleða dráttarbrautarinnar og velt út af honum að austanverðu. Þar bíður öflugt tæki sem mun á morgun brjóta bátinn mélinu smærra og undirbúa hann fyrir útför og greftrun.

Fleiri myndir af atburðinum á myndasíðu síðuhöfundar.

Axel Johann 28-09-2009 005 

Axel Johann 28-09-2009 085

Axel Johann 28-09-2009 110

Fleiri myndir væntanlegar á morgun.

 


Davíð á topp 25

Davíð er að gera það gott, hann er að mati Time einn af 25 einstaklingum í heiminum, sem hvað mesta ábyrgð bera á fjármálakreppunni. 

Það þarf því ekki að koma á óvart að þessi ráðning í stöðu ritstjóra  Morgunblaðsins veki athygli erlendis, hjá siðuðu fólki.

Íslendingar hafa fátt annað gert frá hruninu en að skjóta styrkari stoðum undir þá skoðum erlendis að hér búi gjörspillt og siðlaus þjóð, sem ekkert gott eigi skilið.


mbl.is Ráðning Davíðs vekur athygli ytra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eiga að vera undanþegnir lögum?

Ráðherrar og önnur fyrirmenni ásamt listaelítunni í Evrópu ná vart upp í nefið á sér af hneykslan yfir þeirri ósvífni Bandaríkjamanna að ætla sjálfum Roman Polanski að standa reikniskil gjörða sinna fyrir að misnota barn kynferðislega.

Hvaða skilaboð er þetta lið að senda?

Ég leyfi mér að efast stórlega um að þeir, sem telja ástæðulaust til að amast við barnamisnotkun leikstjórans, væru jafn áhugasamir ef þetta hefði verið þeirra barn.

 
mbl.is Ætla að óska eftir lausn Polanskis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páfinn kastar grjóti úr glerhýsi sínu.

Það má án vafa gagnrýna framkvæmd kommúnismans, sem var langt frá hugmyndafræðinni.

En það sama má segja um kirkjuna og þá ekki hvað síst þá kaþólsku, framkvæmd hennar á kennisetningunum til kúgunar á söfnuðum sínum á lítið skylt við raunveruleikan og boðskap Krists.

Fall kommúnismans er vissulega vatnaskil í veraldarsögunni en það mun falla í skuggann þegar kemur að falli páfadómsins í Róm ásamt öllu því hræsni- og spillingarliði sem það elur.


mbl.is Fagnaði falli kommúnismans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju skila háir skattar af engu?

Það kann að ráða úrslitum að Íslenska þjóðin standi undir þeim drápsklyfjum sem á hana hafa verið lagðar að Drekasvæðið skili landinu tekjum í framtíðinni.

Skattlagning af þeirri starfsemi sem svæðinu tengist má ekki vera með þeim hætti að enginn sýni verkefninu áhuga.

Þar sem megin tilgangur skatta er að afla Ríkinu tekna,  má ekki fara yfir ákveðin ballans, þá fer skattlagningin að vinna gegn sjálfri sér og tilgangi sínum.

Háir skattar af engum tekjum af Drekasvæðinu skila þjóðinni engu. Hafi sá skattarammi sem sniðin hefur verið að hugsanlegri olíuvinnslu fælt áhugasama frá verkefninu þarf að breyta honum.

Verði það ekki gert verður engin olía unnin á svæðinu, þótt hana kunni að vera að finna þar í miklu magni.

Vonandi er  það ekki tilgangur skattlagningarinnar.


mbl.is Getgátur um gríðarlegar olíulindir á Drekasvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mogginn í uppsveiflu?

Óskar Magnússon sagði  í Kastljósinu áðan að starfsmenn Moggans hefðu haft áhyggjur af því að hann, myndi með aðkomu sinni að blaðinu, reyna að hafa áhrif á ritstjórn þess.  Það hefði ekki gerst!! 

Ha...!!  HALLÓ!  Er uppsögn ritstjóra vegna ritstjórnarstefnu hans ekki afskipti af ritstjórn blaðsins? Geta afskiptin orðið öllu meiri?

slæmt blaðMorgunblaðið hefur alla tíð notið mikils trausts landsmanna,  að sögn Óskars, og það traust var að aukast!! 

Og þá er ritstjórinn rekinn ásamt lunganu af reyndustu og hæfustu blaðamönnum blaðsins!  Já, einmitt!

Og til að bíta höfuðið af skömminni er einn umdeildasti maður samtímans og um leið einn helsti gerandinn í þeim málum, sem hvað mest hafa verið og munu verða í fréttum næstu misserin, Davíð Oddson, ráðinn til að ritstýra fréttum um hrunið og órjúfanleg tengsl hans við það beint og óbeint!

Ef þessi gjörningur verður til þess að auka traust á Morgunblaðinu, þá á þessi þjóð það skilið sem yfir hana hefur dunið.

 
mbl.is Harmar uppsagnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband