Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Af vondu leðri gjörast ei góðir skór.....

bad_marriage.....það var því ráð í tíma tekið að enda þetta samband sem var andvana fætt og ekki á vetur setjandi.

.

.

.

 
mbl.is Skildu á brúðkaupsdaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á forsetinn annan kost en hafna undirskrift og vísa afgreiðslu Alþingis á Icesave samningnum til þjóðarinnar?

forseti_slands_JPG_550x400_q95Ég hallast helst að því að okkur beri því miður, lagarlega og þjóðréttarlega séð, að greiða þessa bölvuðu útrásar afurð.

En þar sem þetta er örugglega eitt stærsta mál sem komið hefur fyrir Ríkisstjórn Íslands og Alþingi þá getur vart farið öðruvísi en forsetinn synji þessu máli samþykki og undirskrift og vísi þannig endanlegri afgreiðslu til þjóðarinnar.

Hafi mikilvægi „fjölmiðlafrumvarpsins“ verið slíkt að það réttlætti synjun forseta á sínum tíma, sem ég rengi ekki, þá er þetta mál það svo sannarlega. Fróðlegt væri að sjá haldbæran rökstuðning að svo sé ekki.

Hafni þjóðin þessu Icesave ógeði þá er það hennar val og hún er þá væntanlega tilbúin að taka meintum afleiðingum.

 
mbl.is Getum staðið við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í tilefni.....

súkkulaðirós......af  afmæli síðuhöfundar í dag er öllum bloggvinum,  vinum, ættingjum,  velunnurum, fjandvinum, fjandfrænda og .... já bara öllum, boðið í ímyndaða veislu sem haldin verður hvergi, því afmælisbarnið er að heiman. 

 Jú jú.


Vísindaleg sönnun?

páll postuliAldursgreining beinflísanna kann að sýna rétta tímasetningu við  meinta tilvist Páls.

En til að það sanni að um Pál sé að ræða, þarf hann þá ekki óvefengjanlega að hafa verið eini maðurinn, sem dó og var grafin í Róm á þessum tíma?

Er það staðreynd?


mbl.is Leifar Páls postula fundnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er átakanleg lesning.....

old%20woman...að fólk á þessum aldri skuli deyja.

En þungamiðja fréttarinnar er án efa að nú eru tvö börn á níræðisaldri orðin munaðarlaus.

.

.

.


mbl.is Elsti Evrópubúinn látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var hann ekki bara fullur......

 

.....af heilögum anda?  Svo var hann úti að aka, blessaður, á Guðs vegum.

 
mbl.is Kennir messuvíni um ölvunarakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auga fyrir auga og.....

Er ekki rétt að bjóða ógeðinu upp á sömu kjör? Innilokun í fangaklefa án salernisaðstöðu, og hvorki vott né þurrt, í tvo daga?

En því miður verður það ekki gert, það eina sem gerist er að hundinum verður lógað og viðbjóðurinn fær sér bara annan og málið dautt með hundinum.

Annars segir fréttin að maðurinn hafi verið handtekinn fyrir að veitast að lögreglunni en ekki fyrir illa meðferð á hundinum eins ætla má af fyrirsögn fréttarinnar.


mbl.is Handtekinn fyrir illa meðferð á hundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar möppudýrin komast á flug þá er þetta útkoman.

Þetta minnir mig á þegar Helga Björg HU 7 frá Skagaströnd, sem var í eigu föður míns og tveggja félaga hans, fékk úthlutað kvóta eitt árið. Þá hljóðaði karfakvóti þess árs upp á 180 grömm!

 

Gert var grín að þessu og gárungarnir sögðu að það gæti tekið þá félaga allt árið að ná karfakvótanum, að finna titt sem væri slétt 180 grömm.

 
mbl.is Mega veiða sjö fiska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru það bara beinharðir peningar sem geta flokkast sem greiðsla fyrir kynlíf?

Það virðist regla að þegar tvítugar stúlkur „falla“ fyrir sjötugum mönnum þá eru viðkomandi Casanovar vel múraðir,  í bak og fyrir.

Það þarf ekki að fara í grafgötur með að þessar snótir eru fyrst og síðast að sækjast eftir hinu ljúfa lífi, peningum og öllu því sem þeir veita aðgang að. Það þarf enginn að reyna að segja mér að sjötugur karl hafi líkamlegt aðdráttarafl fyrir „barnungar“  konur.

Eitthvað vill lukkunnar pamfíllinn fá í staðin, hvort sem hann heitir Hefner eða Berlusconi.  

Berlusconi fer örugglega ekki tómhentur á fund tvítugrar stúlku hafi hann hugsað sér að sá fundur yrði annað og meira en spjall yfir kaffibolla.

Það mun vera til orð um þessi viðskipti, og þau eru víst bönnuð hér á landi, a.m.k. í lausasölu. 

 
mbl.is Hefur aldrei greitt fyrir kynlíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgir Ármannsson illa sleginn....

flyingdonkeyrecortada....yfir afleiðingum langrar stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins.

Birgi hefði  að skaðlausu mátt leggja til hliðar í síðustu kosningum , varanlega.

Margir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, sem þá féllu af þingi, voru mun betur til þess fallnir að draga fortíðarvanda flokksins en Birgir Ármannsson.

 

mbl.is Ekki tími nýrra stofnanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.