Bloggfærslur mánaðarins, október 2011

Æ

Æ,æ!
mbl.is Kim Kardashian sækir um skilnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Metsölubókin – sem aldrei verður skrifuð

Er ekki lífið dásamlegt?  Það færir sumum auð og frægð fyrir ekkert á meðan það strípar og bælir aðra þó  hart leggi að sér.

Stúlku kindin Pippa Middleton, sem fyrir tveim árum var vart talin geta pantað sér kaffi á næstu sjoppu án þess að verða sér til skammar er núna, fyrir mægð við helstu lágkúru Bretlands og þá  sök eina, djarflega auglýst sem næsti metsöluhöfundur fyrir óskrifaða og óljósa hugmynd að bók um borð- og dúkaskreytingar.

Já, lífið er sannarlega undarlegt.

   


mbl.is Pippa Middleton íhugar að gefa út bók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsarans verk

Þegar bandaríkjamenn segja að þeim sé ekki ljóst hver fari með völd í einhverju tilteknu ríki er í raun stutt í að þeir blási í herlúðrana.

Þetta er 1. stigs undirbúningur að réttlætingu þess að þeir íhugi að taka lögin í sínar hendur í viðkomandi ríki , með hervaldi sem hægri hönd frelsarans,  til að drottna þar og dæma og útdeila landsins auðlindum til rétttrúaðra fylgismanna.

Er innrás og „frelsun“ Írans næsta verk frelsarans umboðsmanna?

Kanarnir ættu kannski að byrja á því að nota þessar yfirdrifnu mannréttinda- jafnréttis- og frelsishugsjónir sínar til að koma ástandi þeirra sömu mála í sama horf heima fyrir og þeir reyna stöðugt að þröngva upp á aðrar þjóðir.

En af einhverjum ástæðum er lítill áhugi á því.

Og þessu fylgja Íslensk stjórnvöld í algerri blindni og hugsunarleysi þó vítin ættu að vera þeim til varnaðar.

Aumari verður vart vesaldómurinn.

 


mbl.is Óvíst hver stjórnar í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Martröð bláu helhandarinnar

Þessi kosningaúrslit verða að teljast nokkuð merkileg.  Það er mjög athyglisvert að jafn    „hataður og óvinsæll“ maður, og bláa helhöndin segir Steingrím vera,  skuli fá 73% atkvæða til formanns og það á móti tveim sterkum frambjóðendum. 

Ætli hinn elskaði, virti og vinsæli Bjarni Benediktsson komist nálægt því fylgi, komi til formannskosninga á landsfundi bláu helhandarinnar?


mbl.is Steingrímur áfram formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláa helhöndin skelfur

Ekki þarf að efast um að Steingrímur verði endurkjörin formaður VG með afgerandi kosningu.

blaa hondinEn hinsvegar eru margir sem vilja og vona að svo fari ekki, eðlilega, enda eru það allt helbláir og krónískir kjósendur íhaldsins.

Íhaldsmeindýrin hafa hátt, ekki vantar það,  spara ekki stóru orðin í garð Steingríms, sem þeim stendur stuggur af, enda er hann að öðrum ólöstuðum hvað öflugastur andstæðinga bláu helhandarinnar, nú um stundir.

  


mbl.is Tvö í framboð gegn Steingrími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítlegt eðli

Ja hérna, mættu helgislepju hjúin Lilja og Atli á landsfund VG til þess eins að segja sig formlega úr flokknum?

558345Þetta þokkapar lét, með öðrum orðum, flokksfélög sín velja sig sem þingfulltrúa á landsfundinn til þess eins að þau gætu dramaserað úrsögn sína úr flokknum!

Hvað segir þetta um innræti þessara svikahjúa, sem hindruðu með þessu framferði einhverja aðra, sem að heilindum vilja vinna innan VG, að komast á landsfundinn.

Skítlegt eðli hefur verið nefnt fyrir minni sök.

En það ber að virða það við Atla að hann viðurkennir að vera afvegaleiddur kjáni.


mbl.is Lilja og Atli segja sig úr VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar menn týna sjálfum sér

Það bregst ekki að varla hefur verið hringt út til rjúpnaveiða þegar björgunar- sveitir hafa verið kallaðar út til að tína upp rjúpnaskyttur, sem hafa gersam- lega týnt sjálfum sér við rjúpnaleitina.

Lausnin á þessu árvissa vandamáli er auðvitað, að sú kvöð fylgi hverju veiðileyfi, að fullþjálfaður björgunarsveitarmaður fylgi rjúpnaskyttunni hvert fótmál við veiðarnar.

Björgunarsveitarmaðurinn getur þá, í stað þess að leita að rjúpnaskyttunni, leitað að rjúpu fyrir veiðimanninn og leitt hann að bráðinni og síðan heilan heim á eftir.

  


mbl.is Rjúpnaskyttur í vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drottnari þjóðveganna

forystufe1Blessuð sauðkindin, lætur ekki að sér hæða. Íslenska sauðkindin er nánast allstaðar alvaldur drottnari þjóðveganna.  

Hún nýtur þeirrar sérstöðu að vera alltaf í fullum rétti, saklaus og óábyrg gjörða sinna, rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn, sama hvaða tjóni hún veldur blessunin.


mbl.is Rækjan tók húsið af bílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krókur á móti bragði

Ætli Bandaríkin að beita fjárkúgunum til að þvinga Sameinuðu þjóðirnar til að fara að vilja þeirra, ber að skoða það í fyllstu alvöru að flytja alla starfsemi samtakana frá Bandaríkjunum til annars lands.

Ljóst er að verulegar fjárhæðir væru í húfi fyrir Bandaríkin verði starfsemi Sþ flutt frá Bandaríkjunum.

Það er ekki sjálfgefið eða náttúrulögmál að aðsetur Sþ sé þar vestra. Bandaríkin verða að átta sig á því að þau eru hluti af samfélagi þjóðanna en ekki öfugt.


mbl.is Hætta stuðningi, fái Palestína aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalaverndunarsamtök styðja hvalveiðar við Ísland

hvalkjötÞað ber að þakka The Whale and Dolphin Conservation Society fyrir þeirra framlag til eflingar og áframhaldandi hvalveiða við Ísland, með því að kaupa hvalkjöt í Leifsstöð,  í tvígang.  

Stuðningur slíkra samtaka í verki, er ómetanlegur.


mbl.is Gagnrýna sölu hvalkjöts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband