Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Farinn í sólina

Farinn að heiman. Næstu 3 vikurnar verð ég til heimilis á Agia Marina ströndinni á Krít.

 IMG 0385Hótel Santa Marina.

STA50124Ströndin

IMG 0514Santorini- auðvitað fer ég þangað

Bið að heilsa........................................sjáumst!

  


Gula pressan

pamelaandersonxrayfi6Þær eru margar „örlátar“ stjörnurnar í Hollywood. Eða svo mætti ætla. En það er lítið gaman að vera stjarna og gefa í „gott málefni“  ef enginn veit af því. Tryggja þarf  pressunni allar upplýsingar, helst halda blaðamannafund, baða sig í fjölmiðlaljósinu svo allir geti notið þess með viðkomandi hve gott það er að vera ríkur og geta gefið „smáaura“,  af alsnægtum sínum.

Þegar „fátæka ekkjan“ úr hópi almennings gefur  „stórfé“  af skorti sínum, til góðs málefnis, er ekki boðað til blaðamannafunda,  enda hafa blaðamenn gulu pressunar og lesendur hennar ekki áhuga á slíku glamurleysi.   


mbl.is Gefur bílinn sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mánudagsmæðan

Ég var að viðra hundinn minn hann Bangsa eitt kvöldið fyrir stuttu. Við áttum leið framhjá girðingu þar sem nokkrir hestar voru á beit. Meðan við löbbuðum framhjá fór ég að veita  einum klárnum meiri athygli en hinum. Þetta var blesóttur jálkur, þreytulegur að sjá og hélt sig  nokkuð frá hinum hestunum. Ég gat ekki betur séð en hann væri að róta með snoppunni í einhverju rusli á túninu. Þá er ég horfi á þetta lýstur niður í huga mér minningu úr barnæsku, af Blesa, hesti á Skagaströnd sem var alveg í rusli, bókstaflega sagt.

Ég fór að grafa í fylgsnum hugans að því sem hann hafði að fela um þennan merka hest og þóttist þá muna þá að Rúnar Kristjánsson skáld og húsasmiður á Skagaströnd hafði skrifað grein um hestinn í Feyki, óháða fréttablaðið á norðurlandi vestra. Ég fór og grúskaði í gömlum Feykisblöðum og öðrum gögnum frá þessum tíma, sem ég varðveiti sem sjáöldur augna minna. Og greinin var þarna í Feyki frá 13. Sept. 1989.

Við lestur greinar Rúnars varð mér ljóst að hér var á ferð alger gimsteinn. Ég ætla að gerast svo djarfur að birta þessa grein Rúnars í heild hér á bloggi mínu að honum forspurðum og vona að hann fyrirgefi mér það.

Greinin er svohljóðandi:

Fyrir allmörgum árum var öllum íbúum Skagastrandar vel kunnur klár einn í eigu Sigurbjörns á Kárastöðum. Klár þessi hét Blesi, en sökum þess að hann sótti mjög í ruslatunnur bæjarbúa og sýndi mikla hugkvæmni í því að komast í góðgæti það sem þær höfðu að geyma, var nafn hans lengt og hann nefndur Tunnu-Blesi.

Jun09#01

Þarna var vissulega um mesta skynsemdarjálk að ræða, en ekki skorti hann þráann og einráðinn var hann í því alla sína tíð að fara helst sínar eigin leiðir.Athyglisvert var að fylgjast með honum þegar hann kom að ruslatunnu sem var með kyrfilega yfirfelldum hlemmi, þá var það venja hans að bera tanngarðana og leggja geiflur sínar snyrtilega um hölduna, kippa hlemminum upp með tilþrifum, henda honum til jarðar og stinga síðan hausnum niður í matvörudeildina. Aðrir ferfættir voru látnir skilja það, á ótvíræðan hátt, að hann ætlaði sér að sitja einn að krásunum.   (Hér var um að ræða tunnur gerðar úr olíutunnum með stálloki og því engin léttavara. Aths. Axel)

Tunnu-Blesi var  ekki gjarn á það að flýta sér, enda streitan í algjöru lágmarki hjá honum, hann var nefnilega heimspekilega sinnaður og spekúleraði áreiðanlega í mörgu. Mannlífið vakti greinilega áhuga hans og stundum var hann svo íhugull á svipinn, að sjá mátti að hann hugsaði bæði djúpt og fræðilega.

Oft stóð hann út við Norður- Skála, fyrir framan skrifstofur hreppsins og horfði inn um gluggana þar. Þorfinnur Bjarnason hefur áreiðanlega oft hugsað með sér; „hvað er þessi klár eiginlega að hugsa?“, því segja mátti að þeir Blesi horfðust stundum í augu í gegnum glerið. Hinsvegar mátti þá lesa úr svip þess ferfætta fyrir utan, að ólíkt hefðust þeir að, hann og oddvitinn þáverandi“.

Það vissu allir að Blesi var skynugur og vafalaust hefði hann orðið aðnjótandi hárra embætta, hefði hann verið uppi á dögum Caligula keisara, en þar sem Þorfinnur var og er allt önnur manngerð en umræddur keisari, var Blesa svo sem ekki gert hátt undir höfði. Hann varð að reyna að una glaður við sitt og labba frá tunnu til tunnu með alla sína hæfileika sem Þorfinnur aldrei viðurkenndi.

Börnum þótti gaman að koma á bak Blesa og var það hægðarleikur þegar hann var við tunnurnar, þá var hann það önnum kafinn að gramsa í þeim, að hann skeytti því oftast engu þó verið væri að príla upp á hann, en þó kom fyrir að hann sletti til taglinu og var það þá talandi tákn um að hætta skyldi leiknum.

Það var því almennt harmsefni yngri kynslóðarinnar þegar fréttist að Tunnu-Blesi væri horfinn og enginn vissi hvað af honum hefði orðið. Voru uppi ýmsar getgátur um hvarf hans og sumar þeirra ekki sérlega vel til þess fallnar að skýra málið. En svo var það uppgötvað að Blesi greyið hafði fallið ofan í alldjúpan skurð og skorðast þar svo illa að hann hefur sig hvergi getað hreyft. Mun hann við þær kringumstæður hafa beðið dauða síns, vafalaust með svipaðri sálarró og Skarphéðinn forðum við gaflhlaðið.

Þóttu endalok Blesa ill og ógæfuleg og þótti líklegt að hann hefði verið þungt hugsandi er hann átti leið þarna um og því ekki gætt að sér. Var bannsettur skurðurinn úthrópaður sem dauðagildra og gott ef hann var ekki fylltur upp fljótlega eftir þetta. Er nú mjög farið að fyrnast yfir feril Blesa og því þótti við hæfi að dusta rykið af minningu hans, eins kunnasta ferfætlings sem hér hefur alið aldur sinn og það við meiri vinsældir en margur tvífættur“.   

                                                             Rúnar Kristjánsson.  

Ég vona að lesendur hafi haft nokkuð gaman af þessari sögu af Tunnu-Blesa.


Ný Bjarmalandsför?

 Á enn að leggja í nýja Bjarmalandsför gegn Baugi? Er sú illgirni og hefndarþorsti sem var upphaf málsins enn að verki í einhverju bakherberginu við sundin blá, þótt forsætisráðherra hafi í sjónvarpsfréttum lýst því yfir, harla daufur í dálkinn, að dómur Hæstaréttar væri endir málsins?

Geir hefur líka sagt að ákæruvaldið  starfi sjálfstætt og án afskipta framkvæmdavaldsins. Þannig er það víst hugsað en er hægt að draga þá ályktun af  Baugsmálinu að þannig sé það? 

  


mbl.is Ákvörðun um ákæru tekin í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valhallarsiðgæðið

jonasgeirSvo er að sjá að lög hamli því að Jón Ásgeir geti setið í stjórnum sinna eigin félaga næstu 3 árin, eftir dóm Hæstaréttar. Jón var dæmdur fyrir bókhaldsbrot sem er álíka að umfangi og umferðarlagabrot. Það má eflaust deila um þessi lög en lög eru lög og þeim ber að hlíta.

Fyrir nokkrum árum komst upp um þingmanninn Árna Johnsen þar sem hann lét greipar sópa um eigur ríkisins og almennings. Hann var að vonum dæmdur í fangelsi fyrir sín brot og afplánaði dóminn með miklum hetjubrag.

IMAGE2Nú háttar þannig til í lögum að dæmdir menn og mannorðslausir, hafa ekki kjörgengi til Alþingis en þangað stefndi hugur Árna á ný eftir að hafa höndlað frelsið. Nú voru góð ráð dýr. En Valhöll sér um sína. Þar var sest á rökstóla og leitað lausna. Þó farið sé að lögum má alltaf sveigja þau og beygja svo þau falli að háleitum markmiðum.

Þess var beðið að forseti Íslands færi utan. Þá voru handhafar forsetavalds kallaðir saman, þeir hreinsuðu mannorð Árna „með forsetaúrskurði“ á stuttum fundi. Nú var Árni  klár í slaginn, hvítþveginn, syndlaus og betri en nýr. 

Almannarómur segir að frá Valhöll hafi fyrirmæli um rannsókn á Baugi komið. Í ljósi þess er ekki  líklegt að  þaðan komi tilmæli um að handhafar forsetavaldsins komi saman á ný til að endurreisa mannorð Jóns Ásgeirs.

Enda er hér ólíku saman að jafna. Annarsvegar er maður, sem fært hefur Íslenskum almenningi meiri kjarabætur en áralöng barátta verkalýðsfélaga og hinsvegar maður sem setti sig ekki úr færi að stela  frá sama almenningi þegar færi gafst.

 
mbl.is Jón Ásgeir þarf að víkja úr stjórn Baugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki Baugur sigurvegari þrátt fyrir allt?

 jonasgeir  Þrátt fyrir að hæstiréttur hafi að mestu staðfest dóm héraðsdóms í Baugsmálinu tel ég Baugsmenn vera sigurvegara málsins. Jón Ásgeir var í héraðsdómi dæmdur fyrir skjalafals og ranga tilkynningu til hlutafélagaskrár. Nú er hann sýknaður af því en sakfelldur fyrir bókhaldsbrot.

Ekkert bókhald í lýðveldissögunni hefur verið rannsakað og skoðað jafn vel og Baugsbókhaldið. Það hefði verið undarlegt ef ekkert hefði fundist sem orkaði tvímælis, væri á gráu svæði, rangfært eða mislagt.

Ég fullyrði að ekkert bókhald á Íslandi þoli slíka lúsarleit án þess að eitthvað óeðlilegt finnist, eitthvað sem betur mætti fara. Það breytir engu þótt menn megi ekki vamm sitt vita, mistök gerast og eftir því sem reksturinn verður meiri, flóknari og víðtækari, því fleiri mistök. Hér er dæmt fyrir mistök sem gerast í öllum fyrirtækjum. Þar er mitt fyrirtæki Skagstrendingur ehf. ekki undanskilið.

Ekki liggur fyrir kostnaðurinn af þessari Bjarmalandsför, en hann skiptir hundruðum milljóna. Mestur hluti málsvarnarlauna var felldur á ríkið.

Þeir sem komu þessu máli öllu af stað af undarlegum hvötum munu hafa skömm af. Sneypa þeirra mun uppi meðan land er byggt.

 


mbl.is Dómurinn staðfestir fráleitar sakargiftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaffihúsabloggarar og vesturbæjarhúsmæður

 

Margir kaffihúsabloggarar og vesturbæjarhúsmæður hafa í dag farið mikinn og undantekningarlítið gagnrýnt harðlega þá gjörð að fella björninn. Þekkir þetta fólk aðstæður á svæðinu? Þekkir þetta fólk til  Hvítabjarna? Kann það til verka við handsömun á hungruðum og hættulegum villidýrum? Veit það yfir höfuð nokkuð um Hvítabirni?

800px Ursus maritinusÁ Svalbarða standa Norðmenn frammi fyrir þessum sama vanda, ekki á 18 ára fresti eins og hér, heldur oft á ári. Þar eru tveir kostir taldir raunhæfir. Fyrst er reynt að reka björninn aftur út á ísinn sé þess kostur. Takist það ekki er að þeirra mati aðeins eitt raunhæft úrræði, skjóta björninn. Það er nú þannig að ísbirnir eru ekki beinlínis auðsveipur búpeningur sem lætur rekast þangað sem þeim er ætlað að fara, nema ef vera kynni í hugarheimi kaffihúsabloggara og vesturbæjarhúsmæðra.

Ég tel fullvíst að það sé ekki af mannvonsku, umhverfisverndarandúð eða dýrahatri sem Norðmenn fara svona að. Full víst verður að telja að þar ráði mestu áratuga löng reynsla og þekking. En hvað hefur slíkt að segja þegar kemur að tilfinningarríkum Íslenskum bloggurum.

Mest varð ég hissa á ummælum Egils Steingrímssonar héraðsdýralæknis á Blönduósi. Hann taldi lítið mál að reka saman barndýrshelt búr á engum tíma. Eða að svæfa hefði mátt björninn með æti blönduðu svefnlyfi. Ég tel rétt að Egill verði fengin til að kenna mönnum að smíða Hvítabjarnarheld búr úr engu á engum tíma. Eitthvað takmarkað efni um Hvítabirni hefur verið í þeim fræðum sem Egill las til prófs.

Ekki veit ég glögglega ástæður þess að Norðmenn hafa ekki farið að ráðum Egils eða kaffihúsabloggara. Þeir hafa örugglega fengið allar þær frábæru hugmyndir, sem þetta fólk af visku sinni býr yfir, beint í æð en af einhverjum ástæðum ekki talið þær raunhæfar eða framkvæmalegar. Á Svalbarða fara menn ekki af bæ örðuvísi en vopnaðir, það gerðu þeir örugglega ekki ef greining Íslenskra kaffihúsabloggara- og vesturbæjarhúsmæðra á meðfærni Hvítabjarna væri rétt.

800px Grey seals rhossili 2

Hvítabirnir eru algengast 400 til 600 kg. Dæmi eru um birni sem hafa náð 800 kg. 90% af fæðu þeirra er selkjöt. Þeir bana 300 kg. útselsbrimli með einu höggi þannig að hér eru engar barnagælur á ferð.

Það er þægilegt að sitja í öryggi fjarlægðarinnar, í vesturbænum, ýmist heima eða á kaffihúsi og gagnrýna lögregluna á Sauðárkróki. Meta málið af „fagmennsku“ úr fjarlægð af fréttum einum saman og gefa lítið fyrir mat lögreglunnar sem var á vettvangi.

En ég hugsa að tónninn hefði fljótlega breyst í vesturbænum og annað hljóð komið i strokkinn ef bangsi hefði verið á vappi þar í nágreninu og löggan dundað sér við hugmyndir um að fanga hann lifandi í anda rómantísks ævintýris svo hægt yrði að hjálpa honum heim til Birnu og Húna litla, fjölskyldu bangsa sem bíður svöng á ísnum eftir að pabbi komi heim með matinn.

Ísbirnir

Þá yrði nú bloggað maður! Það yrði bloggað um;  aðgerðarleysi yfirvalda, hvað löggan væri að pæla, að öryggi manna væri stefnt í voða, hver bæri ábyrgð  o.s.f.v...... o.s.f.v. Og mönnum yrðu ekki vandaðar kveðjurnar.

 

 


mbl.is Ísbjörninn felldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ólafur F að vakna?

 „Ólafur F. Magnússon borgarstjóri telur að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra og óháðra hefði hugsanlega hlotið betra umtal hefði meirihlutinn sleppt því að setja saman málefnasamning í janúar síðast liðnum. Ólafur vék að störfum meirihlutans og umræðunni um hann á fundi borgarstjórnar fyrr í dag.Ólafur sagði umræðuna um meirihlutann vera óhlutdræga og ósanngjarna þar sem einungis væri hamrað á því neikvæða“.     Svo segir m.a. á Vísi.is í dag. 

Ólafur F.M.

Er þetta ekki örugglega sami  Ólafur F. Magnússon sem stóð keikur, kynnti málefnasamninginn og gortaði af því að í honum hefði  80% af stefnu Frjálslyndaflokksins  náðst fram ? Að nú yrðu verkin látin tala. Er Ólafur að átta sig á því að stefna FF, var ekki, er ekki og verður ekki líkleg til vinsælda í óbreyttu formi. Er þetta fyrsti iðrunarhósti Ólafs, sem er að átta sig á þeim mistökum, sem myndun núverandi meirihluta vissulega var? Verkin hafa talað!

 Ráðhús og Sjallar

Sjálfstæðismenn taka við borgastjórastólnum innan árs og þá verður aðeins ár til kosninga. Ekkert er í spilunum sem bendir til að lausn sé í sjónmáli í  foringjakreppu borgarstjórnarflokks sjallana.

 VilliÞað eina sem er ljóst er að Villi vill. Á meðan getur staða meirihlutans aðeins versnað og ekki hvað síst, staða Ólafs.

 

Ólafur segir umræðuna ósanngjarna aðeins sé talað um það neikvæða. Liggur eitthvað jákvætt  eftir þennan meirihluta? Jafnvel innmúraðir Sjálfstæðismenn koma ekki auga á neitt jákvætt, hvað þá aðrir. Þetta er óvinsælasti meirihluti sem verið hefur við völd í Reykjavík frá upphafi.  

Ég hef þá trú að Ólafi muni líða illa á friðarstóli með sjöllunum, með aðeins ár til kosninga. Þá verður Ólafur aftur orðin að peði, mjög óvinsælu peði raunar.

Það er slæm staða fyrir mann sem hugnast að halda áfram í pólitík til „að vinna að og hrinda fram öllum þeim góðu  málum“, sem hann hefur á stefnuskrá sinni.

 http://visir.is/article/20080603/FRETTIR01/50378850

Nekt eða naut?

 

 nautaat3Nautaat1matador bullfight 11

Dýraat og dýraníðsháttur  er eitthvert ógeðlegasta birtingarform á mannlegu óeðli. Það eina sem hugsanlega gleður augað í þeim slag, sem fram fer í hringnum, er þegar nautinu tekst að svara fyrir sig en það er að lokum dæmt til að láta líf sitt, sjúkum sálum til skemmtunar.

Nautaat2matador bullfight 08

Fylgjendur atsins fullyrða að nautið finni ekkert til! En ekki þarf annað en sjá myndir að aðförunum, þar sem dráp dýrsins er dregið eins á langinn og hægt er, til að efast um þá fullyrðingu. Áhangendur þeirrar fullyrðingar ættu að prófa sannleiksgildi hennar á eigin skinni.

matador bullfight 22matador bullfight 21matador bullfight 02

Nú er nektinni beitt gegn nautaatinu. Nektin er heldur meira fyrir augað en atið.

Ég hef áður bloggað um svipað efni. Hér.

 


mbl.is Nakin gegn nautaati
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einar, áttu til ögn af skynsemi?

ekg

Það  er ekki spurning að hefja hvalveiðar á ný ef hægt er að selja kjötið. Engin ástæða er til að draga þá ákvörðun á langinn.

Því hefur verið fleygt að hvalveiðar geti spillt þeirri ætlan utanríkisráðherra að koma Íslandi inn í öryggisráðið. Ef það er líklegt, þá ætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrann Einar K. Guðfinnsson að grípa þetta eina tækifæri sem hann fær á lífsleiðinni að gera eitthvað af viti. 

Einar  getur slegið tvær flugur í einu höggi,  komið hvalveiðunum af stað aftur og það sem meira er um vert, komið í veg fyrir þá arfavitleysu sem þessi öryggisráðshugmynd er og sparað landinu nokkur hundruð milljónir sem yrði varið til þess eins að geta sleikt rassgatið á Kananum af meiri ákafa en áður.


mbl.is „Sjáum í þessu ágæt viðskiptatækifæri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband