Bloggfærslur mánaðarins, október 2010

Og.....

..............?

 


mbl.is Harry Reid berst fyrir pólitísku lífi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímaflakkari að tala í farsíma 1928!

Það er makalaust bullið sem sumum getur dottið í hug og enn furðulegra hve margir kaupa svona vitleysu athugasemdalaust. Tímaferðalag er og verður aldrei annað er draumórar sem betur fer. Þá væru, ef að líkum lætur, milljarðar manna úr framtíðinni á stöðugu ferðalagi fram og aftur í tíma til að breyta forsendum framtíðar sér í hag. Þá hefði kreppan aldrei orðið, einhverjir væru búnir, í framtíðinni að fara aftur fyrir okkar tíma og breyta forsendum hennar.

En leyfum okkur að ímynda okkur að þessi kona hafi raunverulega hoppað aftur í tímann með símann sinn og verið að tala í hann, þá væntanlega við annan tímaflakkara!  Hvernig má það vera? Farsímar eru álíka gagnslausir til fjarskipta og maskari eða varalitur án móðurstöðva og fjarskiptanets. Ekkert slíkt símanet var til 1928 eins og flestir ættu að vita, hafi þeir á annað borð áhuga á því.


mbl.is Talað í farsíma fyrir tæpri öld?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ekki einn um að hafa skotið sjálfan mig í fótinn

Þessi byssufrétt frá Bandaríkjunum er frétt vikunnar að mínu mati. Hvað er dásamlegra en að eiga byssu til að verja sig og skjóta svo sjálfan sig í fótinn í svefni. 

Nú er stóra spurningin hvort hinn bandaríski Sandford Rothman losi sig við byssuna, til að hindra að þetta gerist aftur, eða fái sér aðra byssu til að geta varið sig fyrir sofandi sjálfum sér?

Er það nokkur spurning?

   


mbl.is Skaut sig í svefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því verr gefast heimskra þingmanna ráð sem fleiri koma saman

Er þetta reiknisdæmi bara bundið við Vestfirði? Er þetta ekki einfaldlega hin sorglega staðreynd í sambandi við niðurskurðarhugmyndir í heilbrigðiskerfinu hringinn í kringum landið? Sparnaðurinn verður óverulegur en útkoman verður þriðja heims heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni.

Stefnan er sett  á lélegustu heilbrigðisþjónustu norðan Miðjarðarhafs en þá langdýrustu miðað við skilvirkni.  Mikið mega þeir vera stoltir af sjálfum sér sem ætla að berja þessa heimsku í gegn.


mbl.is Sparnaður hverfur fljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar eru eftirsóttur vinnukraftur.

Það kemur ekki á óvart að læknar sæki utan í leit að atvinnu enda eru þeir eru ekki einir um það. Þeir eru aðeins lítill hluti af öllum þeim fjölda fólks sem hefur undanfarin misseri þurft að fara utan í leit að lífsviðurværi. Íslendingar eiga auðvelt með að fá vinnu erlendis enda vel kynntur og eftirsóttur vinnukraftur.

Ein er sú stétt manna sem lítið reynir fyrir sér eftir vinnu erlendis, það er stjórnmálastéttin. Það virðist af einhverjum ástæðum vera minni en engin eftirspurn erlendis eftir notuðum íslenskum stjórnmálamönnum.  

Hvernig ætli að standi á því?

 
mbl.is Læknarnir leita til útlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var lausnin á skuldavanda heimilanna send með flöskupósti?

Nú er bara spurningin, hvort lausnir ríkisstjórnarinnar á skuldavanda heimilanna, sem allir hafa beðið eftir með óþreyju frá stofnun stjórnarinnar, hafi verið send með flöskupósti og þá hvaðan?


mbl.is 2 ár á leiðinni frá Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrifað í sandinn

Það var haft eftir einhverjum gúrú hjá Siglingastofnun nýlega að enginn sandur hefði borist inn í Landeyjarhöfn, hann væri svo vinsamlegur að safnast fyrir, fyrir utan höfnina. Raunar tala þeir ekki um sand hjá stofnunni, þetta eru víst allt gosefni sem þarna eru á hreyfingu, sandur er víst nánast óþekkt fyrirbrygði  á þessu svæði.

Þeir þyrftu að lesa fréttir og eigin tilkynningar þarna hjá Siglingastofnun áður en þeir sverja af sér mistökin. Þessi maður, sem ég man ekki hver var, virtist ekkert vita af fyrri fréttum af málinu og tilkynningum þeirra sjálfra að Sóleyjan gæti ekki dýpkað inn í höfninni, aðeins utan hennar dýpkun innan hafnar væri verkefni Perlunnar.  Af hverju var það tekið fram ef engum „gosefnum“ var til að dreifa til að dæla upp innan hafnar?

Svo stangast þær fullyrðingar gersamlega á við það sem upplýsingafulltrúi Siglingastofnunar Þórhildur Elín Þorvalds- og Elínardóttir frænka mín, veitir hér enda ríma þær mun betur  við fyrri fréttir og aðrar upplýsingar.


mbl.is Enn þokast ekkert í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálsar handfæraveiðar

Það eru daglegar skoðanakannanir á heimasíðu Útvarps Sögu, misgáfulegar eins og gengur. Ný könnun var sett inn í hádeginu í dag. Spurt er ;  Vilt þú leyfa frjálsar handfæraveiðar?

Ekkert nema gott eitt um það að segja en mig langar aðeins til að vita eitt; Aðalsteinn eru búinn að kjósa?

  


mbl.is Skaða veiðarfæri lífríki sjávar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynjabókhald BSRB - kynlegt það

Hún er undarleg þessi þráhyggja femínista að kenna körlum alltaf um allar ófarir kvenna halli á þær hlutfallslega í hinu og þessu.

Það er eins og femínistum sé fyrirmunað að líta á heiminn nema í gegnum kynjagleraugun sín. Það er sama hvað er horft á í gegnum þau gleraugu, öll vandamál og erfiðleikar kvenna eru körlum að kenna. Í þeim gleraugum eru karlar svín.

Það þarf mjög einbeittan femínistavilja til að finna það út að það sé körlum í BSRB að kenna, þó þeir séu í miklum minnihluta, að konurnar, sem eru í miklum meirihluta, velja frekar karla í stjórnir félaganna. Vandinn liggur greinilega hjá konunum sjálfum, og á þeim vettvangi  og hvergi annarstaðar verður hann leystur.

En ef til vill liggur vandinn einmitt í því að konur almennt vilji frekar kjósa yfir sig hressa karla en bitrar femínistakonur, sem líta á það sem tilgang lífsins að leggja fæð á menn.

Það er undarlegt þegar sú breyting hefur orðið að kynjaskiptingar og kyngreiningar í hinu og þessu er á hröðu undanhaldi hjá öllum þorra almennings þá veður uppi þröngsýnn hópur sem telur það göfugast markmiða í réttindabaráttu kvenna að ala sem ákafast á kynjaskiptingunni. Það er engu líkara en markmiðið sé ekki að útrýma misrétti og kynjaskiptingu, heldur þvert á móti að viðhalda henni.  


mbl.is Karlar komast frekar í stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjú (þúsund) tonn af sandi, sigló fær ei nóg

Liggur þetta ekki ljóst fyrir, höfnin er full af sandi og lokuð af þeim sökum?  Fátt óljóst í því.

Hlustum á Presley flytja lagið Þrjú tonn af sandi


mbl.is Enn óljóst með Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.