Leit er hafin að týndum kjúklingi...

...sem talið er að sé sýktur af salmonellu. Ekkert er vitað um ferðir kjúklingsins síðan um miðjan dag í gær. Kjúklingurinn var þegar síðast var vitað klæddur í glært plast.

Kjúklingurinn er talinn hættulegur og fólk er beðið um að forðast beina snertingu við hann. Þeir sem verða hans varir eða hafa upplýsingar um ferðir hans síðan í gær eru beðnir um að hafa samband við lögregluna.

 
mbl.is Grunur um salmonellusmit í kjúklingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Erum við að tala um Bjarna Ben ?

hilmar jónsson, 16.4.2010 kl. 18:33

2 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Litla gula hænan hefur greinilega ekki farið varlega í bólförum sínum.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 16.4.2010 kl. 19:14

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nei nei, engar duldar meiningar, ég var aðeins að fjalla um sýktan kjúkling. Ég gat ekki betur skilið af fréttinni en aðeins væri um að ræða einn sýktan kjúkling og því sjálfsagt að auglýsa eftir honum eins og um týndan einstaklinga væri að ræða.

Svona sýking er ekkert grín, undirritaður getur vottað það.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.4.2010 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband