Enginn vill baka brauðið en allir vilja éta það.

Það þarf að skera niður – lækka útgjöld ríkisins, enginn efast um það eða mótmælir því. En þegar að framkvæmdinni kemur rísa menn upp á afturlappirnar og segja sjálfsagt að skera niður en bara ekki hjá þeim, aðrir séu sjálfkjörnir til þess.

Var ekki félagsmálaráðherra aðeins að varpa fram hugmynd í umræðuna? Er þessi hugmynd ekki umræðunnar virði? Félagsmálaráðherra telur að í óhjákvæmilegum niðurskurði megi með þessum hætti hlífa velferðarkerfinu eins og kostur er og forðast uppsagnir.

Sjúkraliðafélag Íslands fer fram með ofstopa og mótmælir hugmyndum félagsmálaráðherra og kallar þær árás á konur. Á þeim bænum virðist það forgangskrafa að menn haldi óskertum launum þó það kosti fjöldauppsagnir og aukið álag á starfsfólk.

Við stöndum frammi fyrir nokkrum kostum og enginn þeirra er góður. Ef Sjúkraliðafélag Íslands telur að hagsmunum félagsmanna sinna sé best borgið með því að senda konur  hópum saman á atvinnuleysisskrá, frekar en halda þeim í vinnu og jafna álaginu, þá er það sjónarmið út af fyrir sig en léleg og heimskuleg hagsmunagæsla.

 
mbl.is Saka Árna Pál um aðför gegn kvennastéttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Þetta er í litningunum.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 10.6.2010 kl. 14:27

2 identicon

„Við stöndum frammi fyrir nokkrum kostum og enginn þeirra er góður“ er ein af klisjunum sem varpað er fram eins og heilögum sannleik. En þetta er ekki nauðsynlega satt, og mögulega röng fullyrðing.

Við stöndum kannski frammi fyrir nokkrum kostum en það er helvíti krapt að fullyrða að nákvæmlega enginn sé góður. Kannski ekki góður fyrir alla, en svo sannarlega suma. T.d. væri hægt að hætta því að halda uppi fáránlegum lífsstíl yfirstéttanna. Að minnka óþarfa spreði, óþarfa neyslu, stöðva sóun. Hagræða þannig að hinar vinnandi stéttir fái sanngjarna þóknun fyrir vinnuna sína á kostnað þess að yfirstéttirnar hverfi. Við vinnum allt of mikið fyrir allt of lítin pening. Verðin hækka og hækka og launin standa í stað. Hvert fara öll verðmætin sem hinar vinnandi stéttir skapa? Jú í hendurnar á yfirstéttunum. Við stöndum frammi fyrir þeim kosti að hætta að greiða fyrir yfirstéttirnar. Minnkandi laun er einn af þessum slæmu kostum sem þú talar um, en minnkandi greiðslur til yfirstéttarinnar er að mínu mati andskoti góður kostur.

Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 10.6.2010 kl. 16:13

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já Inga, þetta er í kvennfyrirlitningunum!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.6.2010 kl. 16:33

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Rúnar, það er margt óréttlætið í heiminum og víða standa þeir lægst settu illa. En hvergi hafa þeir staðið eða standa verr en í ríkjum sem hafa tekið upp alræði öreiganna.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.6.2010 kl. 16:38

5 Smámynd: Vendetta

Hvernig stendur á því að sumar konur (femínistar) kvarta stundum undan því að þeim sé haldið utan við þær starfsgreinar sem flestir karlmenn eru í, sem er vitleysa, en á sama tíma eigna sér heila starfsstétt, sjúkraliðastéttina. Þó að ég einfaldi aðeins vandamálið hvað varðar laun o.fl., þá er það nánast regla að unglingsstúlkur velja alltaf sjálfkrafa lægst launuðu stéttirnar í opinbera geiranum og líta nánast aldrei við iðngreinum sem eru hærra launaðar (t.d. í byggingar- eða rafiðnaði) þegar þær fá að velja. Svo er karlmönnum kennt um allt.

Hitt er svo annað mál að starfsgreinar sem varða umönnun (heilsugæzla, leikskólar, umönnun eldra fólks) er skammarlega lágt launað. En þetta er ekki kvennabarátta heldur almenn launabarátta óháð kyni. Það ætti ekki að kynja starfsstéttir eins og Sjúkraliðafélagið gerir. 

Vendetta, 10.6.2010 kl. 17:10

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það er náttúrulögmál, að þier sem hafa lægstu launin og vinna oft erfiðustu störfin munu bera byrðarnar. Hinir sem eru með langt yfir millu á mánuði ætla sér svo sannarlega ekki að slást með í þann hóp. Þeir hafa ráð undir rifi til að komast hjá slíku.

Finnur Bárðarson, 10.6.2010 kl. 17:36

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Vendetta, þetta er athyglisverður vinkill sem þú kemur inná. Það virðist vera að konur sem vilja afmá kynjamuninn með öllu eru fyrstar til að grípa til hans þegar hentar.

Auðvitað eru launin of lág.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.6.2010 kl. 19:06

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það virðist vera erfitt að komast út úr þessu formi Finnur. Núverandi ástand auðveldar ekki aukinn jöfnuð.

Ef sá flokkur sem hefur það að hugsjón að létta birgðunum sem mest af efnafólki kemst til fyrra fylgis og valda lagast þetta ekki þó betur muni ára.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.6.2010 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband