Vatnaskil

Batnandi staða krónunnar er að skila sér í lægra vöruverði og sýnir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru að skila árangri.

 

Öllum var ljóst eftir hrunið að langur og strembinn róður biði þjóðarinnar. En eftir því sem liðið hefur á þann róður hafa fleiri og fleiri þrotið örendið og hvatt til uppgjafar og það sem verra er hafið róður gegn settu marki.

 

Þó hjöðnun verðlags sé hafið er enn langt í land, þangað náum við ekki nema allir leggist á árar og rói í sömu átt.

En það þýðir ekki að við getum ekki rökrætt hver situr hvaða þóftu og hve erfitt rúm hver og einn skipar, meðan við erum sammála um stefnuna og siglum hana.


mbl.is Matvörur hafa lækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Fyrst allt er svona frábært og krónan að styrkjast af hverju villt þú þá ganga til liðs við ESB?

Sigurður Haraldsson, 8.7.2010 kl. 20:57

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég hef hvergi sagt að ég vildi það, Sigurður.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.7.2010 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband