Landsins ljótasta hús.

Það halda sumum mönnum engin bönd þegar þeir fá tækifæri til að fara á illa ýkt menningar fyllirí. Núna hefur menntamálaráðherra tekið eitt slíkt flikk flakk og friðað útlitið á Gljúfrasteini!

 

Ef nóbelsskáldið hefði ekki búið í þessu húsi væri fyrir löngu búið að rífa það fyrir útlitssakir og sjónmengun, því lakari arkitektúr og ljótara hús er vandfundið.

 

En hvað gera menn ekki þegar menningarsnobbið er annarsvegar?

   
mbl.is Ráðherra friðar Gljúfrastein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Já húsið er for ljótt og hvers vegna á að friða það?

Sigurður Haraldsson, 17.7.2010 kl. 10:58

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er nú stóra spurningin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.7.2010 kl. 11:18

3 identicon

Líklega er þarft að friða þetta hús, fyrst útlit þess særir ykkar löggilta smekk.  Ekki voru handritin notuð í skæði vegna þess sem á þeim stóð - íslenska menningararfsins.

kela (IP-tala skráð) 17.7.2010 kl. 13:03

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það má friða þetta hús til helvítis og til baka aftur mín vegna kela. Ég skil bara ekki tilganginn og þörfina á því, nema þá til að ráðherrann gæti orðið ögn menningarlegur einn dag.

Ég vona samt að þú missir ekki andann af andakt yfir fegurðinni ef þú ættir  leið framhjá hofinu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.7.2010 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.